geðheilbrigðismál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svarið. Þó að ég hafi vísað í skýrslu Ríkisendurskoðunar og talað almennt um geðheilbrigðisvanda er ég í rauninni að leggja til sérstakt og afmarkað rannsóknarverkefni, ekki um geðræn vandamál almennt heldur þetta sem ég tel alvarlegast af öllu og leiðir til sjálfsvíga og gríðarlegrar vanlíðunar sem er þunglyndið og kvíðatengd mál. Ég er að leggja það til að heilbrigðisráðherra taki höndum saman með öðrum sem kynnu að láta sig málið varða og það verði komið hópi á stofn hér til að vinna sérstaklega að samantekt allra heimilda alls staðar frá. Ég tel þetta það alvarlegt, sérstaklega hér á landi, að við eigum að hafa frumkvæðið í þessu og það eigi að leita alþjóðlegs samstarfs og hugsanlega styrkja. Þetta er ekki verkefni sem verður unnið snögglega eða hratt. Þetta kallar á mikla yfirlegu og ár.