152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

stafrænar smiðjur.

[12:00]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er kannski pólitískari spurning sem slík, en bara almennt séð varðandi afgreiðslu stjórnarandstöðumála og í rauninni jafnvel stjórnarmála, þegar það kemur ný ríkisstjórn. Nefnum sem dæmi: Breyting á lögum um fjármögnun sálfræðiþjónustu, niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, það var samþykkt hérna á þingi, það eru lög og réttindi um það, en svo er bara ákveðið að fjármagna þetta ekki. Þingsályktun um að sækja um aðild að Evrópusambandinu, sú þingsályktun var bara afgreidd með einhverri bréfasendingu af utanríkisráðherra á þeim tíma, í staðinn fyrir að þingið ákvæði það á einn eða annan hátt, af því að þetta er þingsályktunartillaga, ekki framkvæmdarvaldsákvörðunartillaga. Þá kannski bara á pólitískum forsendum; hver ákveður? Hvernig getur framkvæmdarvaldið ákveðið hvenær búið er að uppfylla það sem þingið ákveður? Ég tala nú ekki um þegar það eru einmitt skipulögð réttindi í lögum um að fjármagna ákveðna þjónustu sem er þá ekki gert. Hvernig virkar það eiginlega?