stafrænar smiðjur.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þingsályktunartillögur eru mjög gagnlegar og við eigum — og ég tek það til mín — líklega að huga betur að framgangi þeirra og eftirfylgni. Ég segi fyrir mitt leyti, af því við erum að tala um pólitíkina og hvernig við erum að fara með mál inn í þingið, að ég lagði áherslu á það á fyrra kjörtímabili að vera til að mynda með þingsályktunartillögu til að efla íslensku sem opinbert mál og svo líka um menntastefnu. Þetta fannst mér mikilvægast að gera til þess að fá tilfinningu fyrir því hvað væri að gerast hér í þinginu. Nefndarstarfið er svo mikilvægt vegna þess að í nefndum er verið að fínpússa þessar tillögur og auðvitað lagafrumvörp og málin verða mun betri eftir þá þinglegu meðferð. Ég tek undir það með hv. þingmanni að við þurfum að vanda okkur betur og ég mun skoða þetta. Ég held reyndar að ég sé ekki lengur með stafrænu smiðjurnar en vil gjarnan leggja mitt af mörkum til þess að þetta verði betra.