152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

aðgerðir til að minnka halla ríkissjóðs.

[12:03]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í dag munum við ræða fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Hún hefur tekið verulegum breytingum og er ástæða þess sú að í síðustu viku kynnti ríkisstjórn Íslands aðgerðir sem ætlað er að slá á þenslu og minnka verðbólgu. Jafnframt er þessum aðgerðum ætlað að minnka halla ríkissjóðs. Umfang þessara aðgerða er talið vera 0,7% af vergri landsframleiðslu og skila um 26 milljörðum kr. Meðal aðgerða sem gripið verður til er breyting á gjaldtöku bíla, minni afsláttur á áfengis- og tóbaksgjaldi í fríhöfninni, varanleg lækkun ferðakostnaðar hjá ríkinu, lækkun á framlögum til stjórnmálasamtaka. Þá verður fyrirkomulag og umfang verðmætagjalds vegna sjókvíaeldis endurskoðað og varaflugvallargjald lagt á. Þá á almenn aðhaldskrafa að vera 2% og 0,5% á framhaldsskóla og háskóla og síðan verður útgjaldasvigrúm minnkað úr 4,1 milljarði í 2,1. Fjárfestingaráform á næsta ári verða einnig endurskoðuð í ljósi stöðunnar á byggingarmarkaði.

Virðulegur forseti. Ég fæ ekki séð að þessar aðgerðir muni skila þeim markmiðum sem að er stefnt og þær munu helst hafa áhrif á þá sem lægstar hafa tekjurnar í þessu samfélagi. Á sama tíma er verið að kynna aðgerðir eins og niðurfellingu á virðisaukaskatti á hreinorkubílum og 35% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kvikmyndaframleiðslu sem að sjálfsögðu munu auka þenslu. Það er eins og vinstri höndin viti ekki hvað gerist hjá þeirri hægri. Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún telji að þær aðgerðir sem verið er að grípa til skili þeim árangri sem að er stefnt, þ.e. að slá á þá spennu og minnka verðbólgu. Eða eru þetta bara aðgerðir sem munu afla ríkissjóði meiri tekna?