152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

aðgerðir til að minnka halla ríkissjóðs.

[12:05]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Stóra sýnin er auðvitað sú að við getum dregið hraðar úr halla ríkissjóðs. Með því drögum við úr þenslu og með því erum við að vinna með Seðlabankanum að innleiðingu peningastefnunnar. Þetta gerum við með blandaðri leið að þessu sinni, þ.e. með aukinni tekjuöflun, með auknu aðhaldi og með hliðrun fjárfestinga, sem er í raun metið út frá stöðu hverrar fjárfestingar fyrir sig svo að við séum ekki að auka á þensluna. Fer þetta saman við aukinn stuðning við kvikmyndagerð? Ég vil bara minna á að stefna ríkisstjórnarinnar, yfirlýst, er að styðja sérstaklega við hugverkageirann, hvort sem er í gegnum stuðning við rannsóknir og þróun eða stuðning við kvikmyndagerð. Við metum það mikilvægt efnahagsmál að fjölga stoðunum undir atvinnu- og efnahagslíf, að stoðirnar verði fjölbreyttari, að þær verði fleiri. Það eitt og sér er mikilvæg efnahagsstefna.

Ég vil segja, af því að því hefur verið haldið fram að þetta bitni á þeim sem síst skyldi, t.d. almannaþjónustunni, að gerð er undanþága hvað varðar aðhald þegar kemur að heilbrigðisstofnunum, öldrunarstofnunum, almannatryggingum, sjúkratryggingum, atvinnuleysi, dómstólum. Á þessa þætti erum við ekki að leggja neitt aðhald þó að annað mætti halda af umræðunni sem verið hefur um breytingartillögurnar. Ég vil líka segja það að sumt af því sem lagt er til, þegar kemur að tekjuöflun, er í raun og veru eitthvað sem ég myndi telja tímabært, t.d. varaflugvallagjaldið, og þar með auknar tekjur af ferðaþjónustu, og endurskoðun á gjaldtöku á fiskeldi sem er grein sem við erum að sjá vaxa gríðarlega hratt, bara svo að við tökum dæmi af tveimur atvinnugreinum sem munu leggja sitt inn í þetta.

Við verðum líka að horfa á það að gjaldtaka vegna umferðar og eldsneytis hefur dregist saman, kannski miklu hraðar en nokkur hélt, vegna skýrra aðgerða stjórnvalda í þágu (Forseti hringir.) hreinorkubíla. Auðvitað er vandasamt að tryggja að við getum áfram aflað tekna af þessum þáttum en um leið haldið áfram að styðja við hin bráðnauðsynlegu orkuskipti.