stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Markmið laga um stjórn fiskveiða er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Að mati minni hlutans í nefndinni gengur frumvarpið þvert á markmið laganna um vernd fiskstofna, almannahag og byggðasjónarmið og snýr frekar að því að útvíkka núverandi fiskveiðistjórnarkerfi sem hefur sætt vaxandi gagnrýni almennings um árabil. Kvótakerfið er mannanna verk og ekki meitlað í stein. Við alla endurskoðun, breytingu eða útvíkkun á því verðum við að þora að spyrja hvort kerfið þjóni heildarhagsmunum þjóðarinnar. Ef svo er ekki verða stjórnmálamenn að hafa til þess þor og hugrekki að gera þær breytingar á kerfinu sem þörf er. Ég mun greiða atkvæði gegn málinu.