152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald.

350. mál
[12:27]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér er mál á ferð þar sem fest er varanlega í sessi kvótasetning á sjávargróðri. Við í minni hlutanum höfum lagt til að vísa málinu aftur til ríkisstjórnarinnar því að við teljum að réttara væri að hefja heildarendurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu með það að markmiði að tryggja þjóðinni sanngjarna og réttláta hlutdeild í þessum sameiginlegu auðlindum þjóðarinnar áður en haldið er áfram að kvótasetja nýjar tegundir. Við höfum líka áhyggjur af því að hér eru margar greinar sem varða náttúruvernd felldar á brott úr lögum um stjórn fiskveiða og mun ég greiða atkvæði gegn því.