stjórn fiskveiða og lög um veiðigjald.
Herra forseti. Ég held að við séum að gera góða hluti með því að koma einhverju skikki á þessa veiði. Vert er að minna á að þegar um er að ræða slátt á þangi er fyrst og fremst um að ræða samkomulag við landeigendur, þ.e. að þeir sem ætla að slá þangið þurfi að að vera með slíkt samkomulag. Við leggjum áherslu á að áður en nýtingarleyfi eru gefin út til handa þeim sem hugsa sér að slá þang þurfi að koma til álit og umsögn Náttúrufræðistofnunar. Því er haldið inni og það er samkvæmt beiðni.
Ég vil síðan líka ítreka að þari utan netlaga fellur ekki undir það að fella niður veiðigjald eins og lagt var af stað með í upphafi, enda er þar væntanlega fram undan grein sem við þurfum að huga enn betur að. En ég held að það sé vel gert að gera þetta svona til að ná betur utan um vinnslu á þessum afurðum.