152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[12:36]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Mig langar að nota tækifærið hér til að minna á að um er að ræða fyrstu aðgerðaáætlunina í málefnum hinsegin fólks. Mig langar líka að nefna að m.a. vegna þeirra ákvarðana sem Alþingi hefur tekið, t.d. með lögum um kynrænt sjálfræði og lagabreytingum sem af því leiddu hvað varðar málefni trans og intersex barna, fór Ísland upp um fimm sæti á regnbogakorti í málefnum hinsegin fólks, var í 18. sæti 2019, fór svo upp um nokkur sæti og er nú komið upp í níunda sæti á því. Ég vona svo sannarlega að þessi áætlun verði enn eitt framfaraskrefið í þessum málaflokki. Það hefur verið mikilvægt hvað Alþingi hefur sýnt tiltölulega mikla samstöðu í þessum málefnum því að þetta eru gríðarlega mikilvæg mannréttindamál sem ákvarða gríðarlega stóra hluti fyrir ákveðinn hóp í samfélagi okkar. Ég vil því nota tækifærið og þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir góða vinnu í þessum málefnum og vona að hér séum við að fara að afgreiða enn eitt framfaraskrefið í þessum mikilvæga málaflokki.