152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025.

415. mál
[12:37]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti, hv. þingheimur, kæra þjóð. Mig langaði til að vekja athygli á því varðandi hinsegin fólk eða kynsegin að þau sem skilgreina sig ekki sem karl eða konu eru algjörlega sniðgengin þegar kemur að setu í stjórnum skráðra hlutafélaga. Þar segir að það skuli vera 40% og 60% hlutföll milli karla og kvenna. Það er hvergi pláss fyrir þetta fólk. Þetta þarf að laga.