152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.

168. mál
[12:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég varð fyrir þeirri undarlegu reynslu áðan að það var verið að reyna að ritskoða nefndarálit sem ég er með um fjármálaáætlun, titilinn á einum kafla áætlunarinnar: Hvað í fjandanum er fjármálaáætlun? Það var víst eitthvert orð þarna sem var óviðeigandi, gegn einhverjum stöðlum eða einhverju því um líku. Mér fannst það svolítið merkilegt með tilliti til þessa frumvarps þegar allt kemur til alls. Mér þætti vænt um að ríkisstjórnin myndi pæla aðeins í því og samþykkja þá bara frávísunartillöguna. Það þarf greinilega að skoða þetta aðeins betur.