jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Herra forseti. Ég hef fylgst með umræðu sem hefur átt sér stað innan nefndar og mér finnst satt að segja kúnstugt, í ljósi þeirrar löggjafar sem nú þegar gildir um jafna meðferð innan vinnumarkaðar, að hér sé hv. þingmaður að lýsa gríðarlegum áhyggjum af því ef slík löggjöf eigi að eiga við utan vinnumarkaðar. Það er þó í takt við alla okkar stefnu í mannréttindamálum, í jafnréttismálum og hvernig við viljum leggjast gegn hvers konar mismunun. Hér hefur ýmsu verið haldið fram sem ég hef ekki tíma til að fara nánar út í en það er ágætt ef nefndin tekur málið aftur til skoðunar milli 2. og 3. umr. þannig að eyða megi einhverjum af þeim misskilningi sem hér hefur verið uppi í umræðunni.
Ég verð að segja að mér finnst það óskiljanlegt ef hv. þingmenn vilja hafa annað lagaumhverfi utan vinnumarkaðar en innan vinnumarkaðar og leggjast gegn þeim réttarbótum sem felast í frumvarpinu.