tollalög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum sem felur í sér niðurfellingu tolla á vörur sem eru upprunnar í Úkraínu. Í frumvarpinu er lagt til að nýju ákvæði til bráðabirgða verði bætt við tollalög. Í ákvæðinu verði kveðið á um að fella skuli niður tolla af vörum sem fluttar eru inn á tollsvæði ríkisins og eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu. Ákvæðið kemur því ekki til með að ná yfir vörur sem framleiddar hafa verið í Úkraínu úr hráefnum frá öðrum ríkjum. Gert er ráð fyrir að niðurfelling tolla samkvæmt frumvarpinu verði tímabundin og gildi til og með 31. maí 2023.
Með tillögu frumvarpsins er komið til móts við erindi Úkraínu til EFTA-ríkjanna í tilefni af innrás Rússa um að þau bæti tollfríðindi til handa Úkraínu umfram það sem nú þegar er mælt fyrir um í fríverslunarsamningi milli aðilanna. Samkvæmt samningnum eru iðnaðarvörur og sjávarafurðir tollfrjálsar og því mun tillaga frumvarpsins um niðurfellingu tolla fyrst og fremst taka til landbúnaðarvara.
Meginmarkmiðið með frumvarpi þessu er að sýna að Ísland vill styðja Úkraínu og sýna þann stuðning í verki og gerir þess vegna nauðsynlegar breytingar á lögum í þeim tilgangi að greiða fyrir viðskiptum á þeim erfiðu tímum sem Úkraína gengur í gegnum vegna miskunnarlausrar árásar Rússa á sjálfstætt og fullvalda ríki.
Virðulegi forseti. Ég vil nefna að hér er um að ræða mál sem er augljóslega mjög seint fram komið og hefur fengið að komast á dagskrá með því að afgreidd hafa verið afbrigði fyrir það, og það er þakkarvert. En frumvarpið hefur hlotið afgreiðslu í ríkisstjórn og er komið hingað inn í þingið eins hratt og mögulegt var eftir að tilefnið var komið upp. Ég veit að það eru fáir dagar sem lifa af þessu þinghaldi en vonandi verður eftir sem áður hægt að vinna að þessu máli í nefnd. Ég er í engum vafa um að mál eins og þetta nýtur mikils stuðnings hér í þinginu. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi nema mjög óveruleg áhrif á ríkissjóð.
Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.