tollalög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Ég held að við öll hér inni styðjum efnisatriði þessa máls af heilum hug. Það er eitt atriði sem er tilgreint undir lið 6, mat á áhrifum, þar sem talað er um að hingað til hafi verið tiltölulega hóflegur innflutningur beint frá Úkraínu eða samtals um 550 milljónir á árinu 2021. En eitt er sérstaklega tilgreint hér, með leyfi forseta: „Þar ber einkum að nefna mjólkurduft en mögulegt er að af slíkum innflutningi geti orðið.“
Að mjólkurduftið sé í raun eina varan sem raunveruleg áhrif hlytust af með samþykkt þessa frumvarps hvað aukinn innflutning varðar vekur upp spurningar og hugsun um hversu hægt hefur gengið að bæta stöðu landbúnaðarins í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hefur undanfarin misseri, því að staða landbúnaðarins eða rekstrarskilyrði þeirra sem landbúnað stunda færðust ekki til verri vegar við upphaf Úkraínustríðsins. Það hefur verið miklu lengra ferli. Nú skildi ég það sem svo að áætlað hafi verið að svokallaður spretthópur matvælaráðherra skilaði af sér niðurstöðum sem kynna átti á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ég veit ekki hvort sú var raunin. Það hafa ekki borist neinar fréttir af þeirri vinnu í fjölmiðla að því er ég best veit. En það sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um er hvort eitthvert mat hafi verið lagt á þennan eina þátt sem tiltekinn er í greinargerð frumvarpsins að þetta gæti haft umtalsverð áhrif á og hvort ráðherrann sæi fyrir sér einhverjar mótvægisaðgerðir gagnvart þeim tiltekna þætti.