152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

tollalög.

9. mál
[15:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi þá er það kannski helst með landbúnaðarafurðir þar sem gæti reynt á innflutning vegna þess að aðrir tollar hafa eiginlega ekki verið til staðar. Þetta er sambærileg niðurfelling á tollum og við höfum séð gerast hjá nágrannaþjóðum, Bretar hafa t.d. gengið mjög langt þar. Við höfum ekki náð að framkvæma mat á þessu enda held ég að það yrði háð töluvert mikilli óvissu að reyna að áætla magnið sem mögulega væri hægt að koma úr landi. Það hefur yfir höfuð reynst erfitt að koma vörum frá Úkraínu. En þá er kannski til þess að líta að við erum hér að opna dálítið rúman tímaglugga og eins hafa flutningaleiðir verið að stíflast, eins og við þekkjum, vegna átakanna og breytinga á orkumörkuðum, getum við sagt.

Það var líka spurt um spretthópinn. Það verður fundur í ráðherranefnd í fyrramálið um niðurstöður hans. Ég myndi vilja segja með landbúnaðinn að það sé út af fyrir sig rétt hjá hv. þingmanni að það hafi víða verið rekstrarerfiðleikar í landbúnaði. En við getum ekki sagt að það hafi almennt gengið illa í landbúnaði á Íslandi. Í mjólkurframleiðslunni hefur t.d. átt sér stað mjög mikil samþjöppun og framleiðniaukning og þetta eru orðnar miklu stærri einingar og öflugri en var fyrir nokkrum árum. Það hefur verið mjög erfitt hjá sauðfjárbændum. Það hafa líka orðið gríðarlega miklar breytingar þar. Eitt af því sem er til skoðunar í þessum hópi held ég að séu einmitt starfsskilyrðin þar. Garðyrkjan sýnir á margan hátt mikinn sóknarhug og þar er verið að fjárfesta og ég held að það séu miklir möguleikar í garðyrkju á Íslandi. Það er ekki alls staðar þannig, en hins vegar bæta stríðsátökin á erfiða stöðu, sérstaklega út af áburðarverði og fleiru slíku.