fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni þegar hann fer að tala um að áætlanir þurfi að vera skýrari hvað varðar ákveðna liði. Fyrir þingmann eins og þann sem hér stendur og er að koma hér inn og stíga sín fyrstu skref í þessum áætlunum öllum saman og er að fara í gegnum þetta í fyrsta skipti þá skal ég alveg viðurkenna að þetta er svolítið mikið að komast inn í. Þetta er svolítið flókið og stórt batterí að reyna að skilja. Þess vegna hefur verið ágætt að vera í fjárlaganefndinni með svona reynsluboltum eins og hv. þingmanni m.a. sem hefur oft og tíðum bent einmitt á þetta. Ég get alveg tekið undir sumpart með honum í því að þetta þarf að vera skýrara og ég held að fjárlaganefndin öll sé alveg þar. Ég hef ekki heyrt neinn gagnrýna hv. þingmann þegar hann hefur verið að tala um að þetta þurfi að vera með aðeins skýrari hætti.
Af því að hv. þingmaður talaði um lögregluna áðan, sem ég þekki nú ágætlega, þá sér maður að hækkunin í löggæslunni er um 21% frá 2017–2027, sem er nú töluvert. Hvernig komum við lögreglunni frá þeim stað þar sem hún er í dag og á betri stað 2027? Ég er ekkert endilega viss um að það sé gert í fjármálaáætluninni. Ég held að það sé miklu frekar embættanna sjálfra, og þá ríkislögreglustjóra í því tilfelli, að skerpa línur og samræmingarhlutverk ríkislögreglustjóra varðandi þær áherslur og þau verkefni sem við viljum setja á oddinn hjá lögreglunni. Að sjálfsögðu höfum við sett aukinn þunga í verkefni eins og netglæpi sem eru nú að rísa, kynferðisbrot og fleira, og þar er löggjafinn að koma inn með áherslur. (Forseti hringir.) En ég held að það sé fyrst og fremst, t.d. í þeim málaflokki, ríkislögreglustjóraembættið sjálft sem þarf að setja línurnar þar frekar en við.