fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 í síðari umræðu. Fjármálaáætlunin felur í sér stefnumörkun um áframhaldandi skuldasöfnun út þetta kjörtímabil. Heildarafkoma hins opinbera verður neikvæð út allt tímabilið. Í áætluninni er þó lítið vikið að því að skuldasöfnunin er ekki eingöngu til komin vegna heimsfaraldursins heldur vegna þess að undirliggjandi afkoma hins opinbera var þegar orðin neikvæð árið 2019. Á þetta hefur verið bent m.a. af þingmönnum Viðreisnar. Ábyrg efnahagsstjórn snýst um að gæta að tekjustofnum og útgjaldavexti hins opinbera, jafnvægi í ríkisrekstri, líka á uppgangstíma. Í uppsveiflunni á fyrri hluta síðasta kjörtímabils skorti aðhald, eins og iðulega er reyndin, og fjárfesting aukin og tímabundnum tekjum ráðstafað til varanlegra útgjalda. Þannig eru hagsveiflur ýktar á hagvaxtartíma og síðan þegar landsframleiðsla dregst saman, líkt og gerðist árið 2020, dró ríkisstjórnin úr fjárfestingum og ýkti niðursveifluna enn frekar.
Ábyrgri efnahagsstjórn hefur verið sárlega ábótavant í tíð þessarar ríkisstjórnar. Mig langar, virðulegur forseti, áður en ég held áfram, að fara aðeins yfir nokkrar umsagnir sem bárust nefndinni á umfjöllunartíma. Alls voru 38 umsagnarbeiðnir sendar út en nefndinni bárust 41 umsögn. Mig langar, með leyfi forseta, að fá að lesa hér upp úr nokkrum þeirra sem mér finnst vera mikilvægt. Ég ætla að byrja á Alþýðusambandinu.
ASÍ telur að markmið um útgjaldavöxt sé óraunhæft og skapi ekki grundvöll fyrir þær umbætur sem voru boðaðar í stjórnarsáttmála. Fjármögnun nýrra og aukinna verkefna verði með aðeins með breyttri forgangsröðun eða bættri nýtingu fjármuna samhliða niðurskurði. Fyrirséð sé að útgjöld muni aukast enn frekar, m.a. vegna mótvægisaðgerða vegna verðbólgu, fjölgunar flóttamanna og byggingar þjóðarleikvangs. ASÍ bendir á að skammtímaáskoranir í ríkisfjármálum hafi minnkað vegna þess að horfur í opinberum fjármálunum séu hagfelldari en búist hafði verið við en langtímaáskoranir séu enn til staðar. Þar skorti enn stefnumörkun um hvernig tekjur hins opinbera eigi að standa undir útgjöldum til lengra tíma, þegar tekið er tillit til öldrunar þjóðar og uppsafnaðrar þarfar á fjárfestingu og velferðarumbótum.
BHM er á svipuðu róli og horfir til tekjuhluta áætlunarinnar sem hefur mínu viti ekki verið fjallað nægilega um. BHM nefndi m.a. að möguleiki væri á að hækka fjármagnstekjur og síðan að það væri möguleiki á því að skoða að sértækar stuðningsráðstafanir, sem mörg fyrirtæki fengju, yrðu endurgreiddar, m.a. vegna þess að mörg þeirra hafi verið að borga sér verulegan arð eftir að Covid-faraldrinum lauk. Síðan nefnir BHM að hægt væri að skoða það að draga til baka lækkun á bankaskatti, sem ráðherrar hafa m.a. tekið undir en ekki fylgt eftir. Hvalrekaskattur hefur verið nefndur. Hann yrði þá lagður á þær atvinnugreinar sem högnuðust mest á þeim tíma sem heimsfaraldurinn reið yfir okkur. Það er nú bara þannig, virðulegur forseti, að mörg fyrirtæki standa bara fjarska vel þrátt fyrir faraldur en önnur auðvitað ekki. Það eru mýmörg fyrirtæki sem koma bara vel út úr þessum faraldri og jafnvel betur en oft áður.
Samtök atvinnulífsins eru á svipuðu róli og tala um undirliggjandi ójafnvægi sem hafi verið byrjað að myndast áður en þessi faraldur hófst og að undirliggjandi afkoma ríkissjóðs hafi verið neikvæð um 2,2% þegar á árinu 2019. Þannig að öll þessi samtök benda á að það sé kerfislægur halli í ríkisrekstri. Síðan segja Samtök atvinnulífsins, með leyfi forseta:
„Skort hefur á aðhald í uppsveiflum sem hefur leitt til þess að tímabundnum tekjum hefur gjarnan verið ráðstafað til varanlegra útgjalda. Þessi tilhneiging skapar ójafnvægi og viðvarandi vanda í ríkisrekstri.“
Á Íslandi eru ekki í gildi fjármálareglur sem girða fyrir óhóflega útgjaldaaukningu í sveiflum líkt og gilda í mörgum öðrum löndum. Síðan segja Samtök atvinnulífsins:
„Forsendur um launakostnað í fjármálaáætlun verða að halda til að tryggja megi jafnvægi í ríkisrekstri og á vinnumarkaði sem og stöðugt verðlag. Lítið má út af bregða til að sá jákvæði frumjöfnuður sem gert er ráð fyrir að myndist hjá ríkissjóði árið 2025 verði neikvæður.“
Virðulegi forseti. Ég ætla líka að fá að nefna það sem Viðskiptaráð segir um fjárfestingar sveitarfélaga sem hafa verið í sögulegu lágmarki í faraldrinum en sveitarfélög hafa þó lögbundnar skyldur við íbúa og verða að uppfylla þær hvað sem tautar og raular þannig að þeirra bíður veruleg fjárfestingarþörf. Viðskiptaráð bendir á þetta, að fjárfestingar sveitarfélaga á tímabili áætlunarinnar séu til þess fallnar að auka á spennuna í hagkerfinu og ýkja hagsveifluna í uppgangi frekar en að milda hana.
Að lokum, virðulegur forseti, langar mig að nefna hér umsögn fjármálaráðs, sem er í raun og veru alvarleg að mínu mati, þar sem talað er um að kerfislægur halli á rekstri ríkissjóðs sé helsta ástæða áframhaldandi skuldasöfnunar hins opinbera fram til 2025 en ekki sjálfvirka sveiflujöfnunin eða sértækar ráðstafanir vegna Covid. Fjármálaáætlun fjallar ekki nægjanlega vel eða ítarlega um þetta mikilvæga atriði. Sveifluleiðrétt afkoma getur seint talist vænlegt stefnumið við hérlendar aðstæður. Niðurstöður útreikninganna eru háðar óvissu, forsendurnar margar og sumar hverjar ekki traustar. Samkvæmt lögum um opinber fjármál skal stefnumörkunin byggð á grunngildum um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Grunngildi þjóna sem leiðarvísir í stefnumörkuninni. Fjármálaráð bendir á tómlæti stjórnvalda í garð grunngildanna í gegnum tíðina og að ekki verði séð að umgengnin hafi batnað í framlagðri áætlun. Slíkt veiki stefnumörkunina.
Virðulegur forseti. Þetta vekur mann til umhugsunar um þessa fjármálaáætlun og hvort hún muni yfir höfuð nýtast sem plagg til þess að leggja fram í þessa fimm ára vegferð sem bíður okkar.
En nú er hallarekstur og skuldasöfnun veruleiki ríkisstjórnarinnar næstu árin, lán tekið fyrir rekstrinum sem launafólk þarf að lokum að greiða næstu árin. Sú ríkisstjórn sem tekur við af þessari þarf síðan að sjá um tiltektina. Afkomureglur opinberra fjármála hafa verið teknar úr sambandi, sem þýðir í raun að eina leiðarljós stefnumörkunar eru þá þessi svonefndu grunngildi um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi.
Það verður ekki annað séð en að mikið tómlæti sé í garð þessara grunngilda í fjármálaáætluninni. Tekjustofnar ríkissjóðs eru veikir og hafa verið veiktir enn frekar í valdatíð Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna. Fyrir vikið er ekki ljóst hvernig ríkisstjórnin ætlar að taka á langtímaáskorunum á borð við öldrun þjóðarinnar, uppsafnaða fjárfestingarþörf og uppbyggingu menntunar og velferðar á Íslandi. Í raun er ekki ljóst hvernig ríkisstjórnin ætlar að fjármagna stóran hluta af eigin stjórnarsáttmála og þau fögru fyrirheit sem þar eru fram sett. Ríkisstjórnin hefur ekki nýtt tækifæri sín til að færa skattlagningu fjármagnstekna nær þeim skatti sem lagður er á launafólk eða að setja skýran ramma um auðlindirnar, t.d. með markaðsgjaldi í sjávarútvegi. En hún ætlar að stoppa upp í gatið með því að láta Íslendinga sem fara um Leifsstöð borga meira fyrir bjór og sígarettur. Þannig snúast hinar sérstöku þensluaðgerðir, sem hæstv. fjármálaráðherra hefur boðað, nær eingöngu um tekjuöflun frá almenningi í landinu. Ekki liggur fyrir hvernig ríkisstjórnin ætlar að mæta afleiðingum af klúðrinu við söluna á Íslandsbanka. Það þýðir að seinkun á frekari sölu um óákveðinn tíma skapar 100 milljarða kr. gat frá því sem áður var ætlað. Hvernig því gati verði lokað gerist auðvitað með lántöku sem þýðir aukna samkeppni á lánamarkaði og sjóðstreymi verður lagað á þann hátt.
Markmið fjármálaáætlunar um útgjaldavöxt eru bersýnilega óraunhæf. Það er fjölmargt í kortunum sem ríkisstjórnin hefur boðað; skattaívilnanir vegna kvikmyndagerðar, innviðauppbygging og nýr þjóðarleikvangur. Þetta verður ekki fjármagnað með forgangsröðun eingöngu eða bættri nýtingu fjármuna.
Mig langar líka af þessu tilefni að nefna að þessi ríkisstjórn hefur samþykkt verkefnið Allir vinna, sem er bara eins og krani sem skrúfað hefur verið frá og mun renna úr allt þetta ár og við vitum ekki hvar endar og hversu miklir fjármunir fara í það verkefni.
Virðulegur forseti. Mig langar að minnast á hjúkrunarheimili. Ríkið hefur endurnýjað þjónustusamninga við hjúkrunarheimili og skuldbindur sig til þriggja ára til að fjármagna rekstur þeirra. Miðað við forsendur samninganna fela þeir í sér aukinn kostnað sem er langt umfram þá 0,9% árlegu hækkun sem gert er ráð fyrir að verði á framlögum til hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu á tímabili áætlunarinnar, sérstaklega vegna þess að það er fyrirséð að launakostnaður, að meðtöldum verktakagreiðslum heilbrigðisstarfsfólks, mun hækka verulega á næstu árum.
Hæstv. fjármálaráðherra nefndi nýverið á fundi með fjárlaganefnd að Landspítalinn væri fullfjármagnaður. En ef litið er til sjónarmiða stjórnenda Landspítalans þá vantar talsvert upp á að svo sé. Landspítalinn þyrfti a.m.k. 2% raunaukningu á ári til að halda í við breytta aldurssamsetningu. Miðað við þær forsendur vantar Landspítalann u.þ.b. 8,3 milljarða í reksturinn til þess eins að halda í horfinu. Spítalinn þarf að geta vaxið og tileinkað sér bestu tækni á hverjum tíma og til þess þarf hann fjármagn.
Þá hefur vinnutímastytting um fjóra klukkutíma á viku haft í för með sér verulegan mönnunarvanda á spítalanum, sem bitnar óneitanlega á þjónustunni en ekki síður á starfsfólki sem margt hvert hefur verið undir miklu álagi vegna heimsfaraldurs. Það má reikna með að það vanti á bilinu 200–300 starfsmenn á spítalann til að sinna þeim verkefnum sem sinna þarf á spítalanum. Það er staðreynd að hópur starfsmanna segir nú upp og hverfur til annarra starfa vegna mikils álags, en ekki síður vegna þess að spítalinn virðist ekki vera samkeppnishæfur hvað varðar launakjör. Það er nöturlegt til þess að hugsa að menntaðir hjúkrunarfræðingar skuli velja að hverfa til annarra starfa, t.d. að starfa sem flugþjónar vegna þess að launakjör á þeim vettvangi, sem þó hafa verið skert, eru talsvert betri en launakjör hjúkrunarfræðinga á sjúkrastofnunum. Það er eitthvað bogið við slíka stöðu. Nýverið var 30 hjúkrunarfræðingum sagt upp störfum á Læknavaktinni, hjúkrunarfræðingum sem sinnt höfðu símsvörun og aðstoð við sjúklinga um allt land í gegnum síma. Samkvæmt fréttaflutningi er ástæðan fyrir þessu sú að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill nú taka þetta yfir. Maður hlýtur að velta fyrir sér á hvaða hátt Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins ætlar að gera þetta. Er til mannskapur innan kerfisins til að sinna þessari mikilvægu þjónustu? Ef svo er, hvers vegna eru svona miklir biðlistar í kerfinu sem raun ber vitni? Ég geri ráð fyrir að þeir 30 hjúkrunarfræðingar sem sinntu þessum störfum hjá Læknavaktinni hafi ekki setið aðgerðalausir og því hlýtur heilsugæslan að þurfa að ráða til sín menntaðan starfskraft til að sinna þeim störfum sem þessir hjúkrunarfræðingar sinntu áður hjá Læknavaktinni. Eða eru þetta bara enn ein mistökin innan heilbrigðiskerfisins, illa ígrunduð og illa undirbúin? Þetta minnir óneitanlega á það þegar samningurinn um leghálsskimanir var rifinn upp og afleiðingarnar af því þekkja allir.
Í fjárlögum ársins 2022 voru að frumkvæði stjórnarandstöðu settar inn 250 milljónir í niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Það er ekki að sjá að þetta hafi komist til framkvæmda og maður hlýtur að velta fyrir sér hver ástæðan sé. Ekki er heldur að sjá að verið sé að gera ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun. Árið 2020 samþykkti Alþingi frumvarp Viðreisnar um að sálfræðiþjónusta skyldi vera hluti af tryggingakerfinu, aðgengileg öllum óháð efnahag, líkt og önnur heilbrigðisþjónusta. Þessi lög hefur ríkisstjórnin virt að vettugi, lög sem voru samþykkt einróma og m.a. með atkvæðum margra hæstv. ráðherra. Að gera sálfræðiþjónustu aðgengilegri er lýðheilsumál en það er líka til þess fallið að draga úr nýgengi örorku vegna andlegra veikinda og sparar ríkissjóði fjármuni til lengri tíma litið. Það er löngu tímabært að fjárstjórnarvaldið hugi að langtímasjónarmiðum og markmiðum en bíði ekki bara eftir að eldarnir kvikni og hlaupi þá til að slökkva þá.
Á sömu nótum er aukning framlaga til geðheilbrigðismála um 500 millj. kr. á næsta ári og 100 millj. kr. árið eftir það, hvergi nálægt því að teljast nægilegt til að koma til móts við þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er í geðheilbrigðismálum, sérstaklega núna eftir tvö ár af heimsfaraldri. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi er verið að gera ráð fyrir kjarasamningum sem hefðu í för með sér breytingu upp á 1,5% umfram verðbólgu. Nýjar tillögur gera hins vegar einungis ráð fyrir hálfu prósenti umfram vísitölu. Það er athyglisvert að ríkisstjórnin skuli gera ráð fyrir að verkalýðshreyfingin og launafólk í landinu samþykki kjarasamning með hálfs prósents launabreytingu umfram vísitölu, sem væri í engum takti við þær breytingar sem hafa orðið á húsnæðisverði, húsaleigu, vöxtum, eldsneytisverði og ekki síst matarverði og ekki útlit fyrir að þessi staða sé eitthvað að breytast í náinni framtíð. Í mínum huga er það í hæsta máta óvenjulegt að fjármálaáætlun skuli ekki endurspegla þann raunveruleika sem við stöndum frammi fyrir. Það væri kannski sök sér að miða við litlar hækkanir á kjarasamningum ef ríkisstjórnin hefði eitthvað gert til að verja kaupmátt fólks á móti en um það eru engin merki í fjármálaáætluninni. Þvert á móti leggur hún til aukna gjaldtöku á almenning, hefur stuðlað að stýrivaxtahækkunum umfram það sem nauðsynlegt hefði verið ef efnahagsstjórnin hefði verið meira í samræmi við markmið Seðlabankans.
Ríkisstjórnin hefur líka staðið vörð um krónuna sem er í sögulegu samhengi mesti kaupmáttarböðull þjóðarinnar. Á sama tíma veltur jafnvægi fjármálaáætlunarinnar á því að forsendur um launakostnað haldist. Það má afar lítið út af bregða svo allar forsendur þessarar áætlunar bresti og ég er hreint ekki bjartsýnn fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Húsnæðismál eru öryggismál og nauðsynlegt er að tryggja framboð á húsnæði á viðráðanlegu verði. Hæstv. innviðaráðherra hefur boðað breytingar í þessum efnum til að bæta þessa stöðu. Að mörgu er að hyggja hvað þetta varðar og það eina sem er ljóst nú er að staðan er óviðunandi. Tilkoma Bjargs, sem var óhagnaðardrifið leigufélag sem stofnað var af ASÍ og BSRB, breytti miklu og hefur það nú byggt fjölmargar íbúðir í mörgum sveitarfélögum. En betur má ef duga skal. Það skýtur því skökku við að verið sé að draga úr framlagi til byggingar almennra íbúða sem nemur 2 milljörðum. Það er í engu samræmi við þau fyrirheit sem gefin hafa verið. Eins þarf að tryggja sveitarfélögunum aðgang að lánsfjármagni á kjörum sambærilegum við þau sem ríkið nýtur. Meiri hluti nágrannaríkja okkar flokkar skuldbindingar sveitarfélaga með sama hætti og skuldbindingar ríkis, sem tryggir lægri áhættuvog og hagstæðari vaxtakjör. Það væri hægt að leiðrétta með einu pennastriki og bæta þannig hag allra sveitarfélaga landsins.
Virðulegur forseti. Í kaflanum um sjálfbær lýðræðisleg sveitarfélög er eftirfarandi texta að finna sem ég vil fá að vitna til, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórnin leggur í stjórnarsáttmála sínum áherslu á að stuðla að uppbyggingu öflugra og sjálfbærra sveitarfélaga þar sem samfélagslegir og fjárhagslegir hvatar eru til sameiningar. Stuðlað er að sameiningu sveitarfélaga með aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda á sviði sveitarstjórnarmála. Sveitarfélögin á Íslandi eru 69 talsins og fer ört fækkandi. Íbúafjöldi sveitarfélaga er mjög ólíkur eða allt frá 42 íbúum upp í tæplega 136.000 íbúa. Rúmlega helmingur sveitarfélaga á landinu er með íbúafjölda innan við 1.000 íbúa og um þriðjungur sveitarfélaga með íbúafjölda undir 500. Helsta áskorun sveitarstjórnarstigsins og um leið helsta tækifæri þess er því fólgin í eflingu þess og aukinni sjálfbærni sveitarfélaga. […] Niðurstöður greiningar um fjárhagsleg áhrif þess að íbúafjöldi sveitarfélaga yrði ekki undir 1.000 íbúum sýna að fjárhagslegur ávinningur þeirra gæti numið á bilinu 4–5,5 ma.kr. vegna breyttra áherslna í rekstri. Þá fjármuni mætti nota til að bæta þjónustu og lækka skuldir. […] Vegna hækkunar framlaga Jöfnunarsjóðs til sameininga sveitarfélaga undanfarin ár hefur ríkissjóður á árunum 2020–2022 greitt sjóðnum viðbótarframlag að fjárhæð 935 m.kr. Koma mun í ljós hvort fjárþörf sjóðsins muni aukast frekar á næstu árum eftir því sem sameiningum vindur fram.“
Ekki er að sjá að þessi markmið sem sett eru fram í þessum texta séu á einhvern hátt að finna í fjármálaáætlun. Ekki er gert ráð fyrir framlagi til að flýta fyrir sameiningu sveitarfélaga og ekki er heldur gert ráð fyrir leiðréttingu sem þarf að eiga sér stað á framlagi jöfnunarsjóðs til sveitarfélaganna vegna málefna fatlaðs fólks. Þar munar nú um 9 milljörðum á ári og kemur niður á annarri þjónustu sem sveitarfélögum ber skylda til að veita. Þetta verður að leiðrétta. Og þrátt fyrir fögur orð er heldur ekki verið að horfa til þeirra sveitarfélaga sem þurfa að standa fyrir mikilli innviðauppbyggingu vegna mikillar fólksfjölgunar.
Þá stendur Reykjavíkurborg í málaferlum við jöfnunarsjóð vegna framlaga til grunnskóla og kennslu tvítyngdra barna. Sú krafa hljóðar upp á marga milljarða og það er athyglisvert að Kragasveitarfélögin skuli fá öll slík framlög á meðan borgin ein er skilin eftir. Það skiptir greinilega máli hvoru megin lækjarins þú býrð.
Málefni öryrkja hafa löngum verið hornreka í fjármálum hins opinbera og fjármálaáætlunin ber með sér að svo verði áfram. Í fjármálaáætluninni er ekki að finna merki þess að bæta eigi kjör fatlaðs fólks. Í henni er áætlun upp á 2,5% hækkun útgjalda á ári frá 2024 en sú hækkun á eingöngu við um lýðfræðilega fjölgun og tekur ekki tillit til vaxandi verðbólgu sem til viðbótar er að öllum líkindum vanmetin í áætluninni. Vandi öryrkja verður ekki leystur með því að viðhalda núverandi stöðu. Ef markmiðin um aukna atvinnuþátttöku fólks á örorkulífeyri eiga að nást þarf að draga verulega úr tekjutengingu þeirra. Fækkun fólks með 75% örorkumat næst fyrst og fremst með því að fjölga endurhæfingarúrræðum og auka snemmtækan stuðning við börn og fullorðna. Undir það fellur m.a. að gera sálfræðiþjónustu aðgengilegri en líka að tryggja aðgengi að sjúkraþjálfurum og eyða biðlistum barna eftir greiningum og þjónustu. Fjármálaáætlunin þarf að styðja við þessi markmið en það gerir hún ekki.
Virðulegur forseti. Krónan heldur varla vatni á lygnum sjó, hvað þá þegar stórviðri verða á alþjóðasviðinu, eins og gerðist í heimsfaraldrinum og við innrás Rússa í Úkraínu. Sjálfstæður örgjaldmiðill á opnum markaði er helsta ástæða þess að vextir hér eru alltaf hærri en í löndunum í kringum okkur. Jafnvel þegar þeir eru í sögulegu lágmarki líkt og við lok síðasta kjörtímabils voru þeir samt tvöfalt til fjórfalt hærri hér en í nágrannalöndum okkar. Það er kostnaðarsamt að halda uppi gjaldmiðli eins og krónunni. Hún veitir ríkisstjórninni vissulega svigrúm til efnahagsstjórnar með því að fella hana þegar illa árar, en kostnaðinn fyrir hana greiðum við alla daga allt árið um kring þess á milli. Í raun borgar launafólk líka brúsann þegar hún er felld. Íslenska krónan er því miður steinn í götu nýsköpunar og hugvitsgreina. Þetta eru geirar sem þurfa stöðugleika og fyrirsjáanleika og greitt aðgengi að fjárfestingarfjármagni. Stórir erlendir fjárfestar sem styðja við sprotastarfsemi forðast það að koma með peninginn sinn til Íslands. Það eykur nefnilega áhættu þeirra margfalt að fjárfesta ekki einungis í nýsköpun heldur líka á markaðssvæði með sveiflukenndan gjaldmiðil.
Virðulegur forseti. Eitthvað veldur því að manni finnst þessi fjármálaáætlun ekki vera pappírsins virði. Núna á síðustu dögum þingsins er verið að samþykkja ýmsa hluti sem munu hafa áhrif á fjármálaáætlun, jafnvel upp á marga milljarða, sem eru hvorki kostnaðargreindir né fjármagnaðir. Og eitthvað virðast skúffur hæstv. ráðherra djúpar ef öll þessi útgjöld eiga að vera fjármögnuð með skúffufénu eingöngu. Mig grunar að þegar ný fjármálaáætlun verður lögð fram á næsta ári munum við komast að því að kostnaður vegna niðurfellingar á virðisaukaskatti 5.000 hreinorkubíla, niðurgreiðslu á kvikmyndaframleiðslu og annarra verkefna verði ýtt yfir á næstu ríkisstjórn, á næsta kjörtímabil. Áætlanir eiga að vera leiðarljós um markmiðasett og raunhæf útgjöld ríkisins en ekki draumsýn sem aldrei verður.
Það er hægt að flytja miklu lengri ræður um það sem gagnlegt væri að kæmi fram í fjármálaáætluninni en um það sem er gagnlegt í henni. Í fjármálaáætluninni eru nefnilega ekki færð nein sannfærandi rök fyrir því að opinber fjármál muni á tímabili hennar sporna gegn verðbólgu eða draga úr spennu í hagkerfinu. Markmiðasetningu vegna útgjalda hins opinbera er stórlega ábótavant og það hafa engar framfarir orðið varðandi árangursmælikvarða. Um þessa fjármálaáætlun vil ég aðeins segja þetta að lokum: Ég tel og mér finnst að Íslendingar eigi betra skilið.