152. löggjafarþing — 89. fundur,  13. júní 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[23:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Í síðustu ræðu ræddi ég landbúnað og samgöngumál og þá liggur beinast við að fjalla aðeins um loftslags- og umhverfismálin. Allt er þetta auðvitað nátengt og þá augljóslega færir maður sig yfir í orkumálin í framhaldi af því.

Eitt af því sem þessi ríkisstjórn hefur verið tilbúin til að eyða óhemjupeningum í án þess að vita hvað hún fær fyrir þá eru loftslagsmálin. Þar eru stöðugt kynntar nýjar áætlanir, eflaust til þess gerðar að höfða til stuðningsmanna ákveðins flokks í ríkisstjórninni og einhverra í alþjóðasamfélaginu. Það er þó gert án þess að með góðu móti sé hægt að fá botn í það hvernig fjármagnið nýtist. Hugsunin er greinilega sú að þeim mun meiri peningar sem eru settir í málaflokkinn, merktir honum, þeim mun meira gagn sé verið að gera. En við höfum nú séð það ítrekað í rekstri ríkisins að ekki er alltaf beint samhengi þar á milli. Það er ekkert mjög langt síðan hæstv. fjármálaráðherra lýsti því hér í þinginu að það dygði ekki bara að setja stöðugt meira fjármagn í heilbrigðiskerfið af því að það kæmi ekki að gagni nema kerfið væri lagað. Hvað má þá segja um áform og fyrirheit ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, þar sem kynnt var áætlun um að setja 50 milljarða í loftslagsmál án þess að það fengjust nein raunveruleg svör við því hvernig ætti að nýta þá peninga?

Hættan er auðvitað sú að þeir fari í loftslagið, í þeirri merkingu að þeir fari út í loftið og verði óskynsamlega varið. Þegar ég segi óskynsamlega þá á ég m.a. og ekki síst við að þeir verði ekki til þess fallnir að takast á við loftslagsmálin og loftslagsbreytingar með eins skilvirkum hætti og við gætum gert hér á landi með því að leggja sérstaka áherslu á þá sterku innviði sem við höfum í umhverfisvænni orkuframleiðslu, útvíkkun þeirra og tækniþróun sem af því getur leitt.

Að vísu er hér að sjá í þessari áætlun að áfram verði veittur stuðningur við skógrækt og landgræðslu og því fagna ég. Það er auðvitað eitthvað það besta sem við getum gert í umhverfismálum að rækta landið og sérstaklega að rækta skóg. En á sama tíma er verið að eyða sífellt meiri peningum í aðgerðir sem í raun vinna gegn þeim ávinningi sem við getum til að mynda náð með skógrækt. Þar tala ég t.d. um endurheimt votlendis sem er sérstakur liður í þessum útgjaldaliðum ríkisstjórnarinnar. Þar er gert ráð fyrir gríðarlegum vexti í fjárveitingum ár eftir ár, þrátt fyrir að búið sé að stofna einhvers konar sjóði til að ráðast í það að moka ofan í skurði og skemma ræktarland. Það er mjög óljóst hvaða árangri slíkt skilar í loftslagsmálum og getur hann jafnvel verið neikvæður, enda losar votlendi metan sem er 25 sinnum áhrifameiri lofttegund en koltvísýringur. Þetta er því allt mjög á reiki, en eins og með önnur ímyndarmál ríkisstjórnarinnar þá truflar það þau ekki við að eyða peningum í slík mál. Þó er algerlega ljóst að það að gróðursetja tré í landi sem hefur að einhverju leyti verið þurrkað skilar margfalt meiri árangri fyrir loftslagið í kolefnisbindingu heldur en áform um að eyðileggja landið og breyta því í votlendi.

Þetta er allt á sömu bókina lært, frú forseti. Það er ekki verið að taka ákvarðanir byggðar á innihaldi og raunverulegum áhrifum heldur einhverri sýndarmennsku og umbúðum. (Forseti hringir.) Nú er ég rétt að komast í gegnum innganginn að umfjöllun minni um umhverfismálin og bið því hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.