fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Mig langar í þessari ræðu minni að halda áfram með það sem ég kom inn á áðan varðandi mat á arðsemi verkefna. Það kemur aðeins inn á það sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nefndi hér áðan varðandi Sundabrautina. Það hefur blasað við öllum sem þekkja til og raunar líka flestum sem hafa litla þekkingu á arðsemi framkvæmda, vegagerð og umferðarflæði, að Sundabraut væri arðsamasta og mikilvægasta framkvæmd sem íslenska ríkið gæti ráðist í af þeim öllum; Sundabrautin væri arðsamasta framkvæmd sem okkur stæði til boða. Þrátt fyrir það hefur þrautaganga verkefnisins verið með svipuðum hætti og veglagningar um Teigsskóg. Eini munurinn er sá að þrautaganga Sundabrautar er enn í gangi og hæstv. innviðaráðherra lét sig hafa það að gera enn eitt samkomulagið við borgarstjóra þar sem var rammað inn ferli sem setti málið í þann farveg að ef allt gengur upp, eins og í sögu, verði Sundabraut tilbúin og opin fyrir umferð árið 2031. Það er næstum því áratugur þangað til.
Þetta er staðan sem arðsamasta verkefni sem okkur stendur til boða er í. Þetta fær mann til að hugsa að við verðum með einhverjum ráðum að byggja inn í ákvarðanatökukerfið hjá okkur getu til að taka af skarið með jafn mikilvæg verkefni og þarna eru undir. Við höfum auðvitað verið í þeirri stöðu að Reykjavíkurborg hefur lagt alla þá steina sem borgin hefur fundið í veg verkefnisins, alveg frá því að selja byggingarland undir áætlað landtökusvæði Sundabrautar í það að skipuleggja byggð upp af veglínunni og setja niður færanleg gistiskýli — sem þurfa auðvitað að fá sitt pláss en þetta eru rammgerðustu sökklar sem ég hef séð undir nokkru færanlegu húsi — beinlínis í veglínu Sundabrautar í Gufunesinu eða upp af henni.
Við erum á þeim stað, sem markar nú dálítið frumvarp um loftferðalög sem er hér til afgreiðslu fyrir þinglok, að manni sýnist að sveitarfélög séu dálítið að taka upp á því að fara óvarlega með skipulagsvald sitt sem þeim er svo mikilvægt og kært, leyfi ég mér að segja. Kjarnaatriði sveitarfélaga í landinu er skipulagsvaldið en á sama tíma komum við ekki áleiðis raflínufrumvarpinu, sem var kjarnaatriði þegar kom að því að bregðast við aðventuóveðrinu á sínum tíma til að styðja og styrkja flutningskerfi raforku. Við komumst ekki áfram með arðsömustu vegaframkvæmd sem okkur hefur sennilega nokkurn tímann staðið til boða, sem er Sundabrautin. Við erum í þeirri stöðu að verið er að reyna að hrekja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni með því að þrengja að honum þannig að öryggisstuðull og rekstraröryggi flugvallarins verði sá þáttur sem á endanum hrekur hann af svæðinu þegar borgaryfirvöld sjá ekki fram á að ná að hrekja hann í burtu á grundvelli samkomulags um rannsóknir á veðurfari í Hvassahrauni, enda er þar að gjósa í næsta nágrenni og auðvitað verður aldrei flugvöllur í Hvassahrauni, alla vega ekki á þeim grundvelli sem lagt er af stað með í þessum rannsóknum.
Ég ítreka að við verðum að leita leiða til þess að við hér sem á Alþingi sitjum tökum þær ákvarðanir sem arðbærastar eru, ýtum þeim framkvæmdum af stað og höfum tækin og tólin til að þau komist á koppinn þannig að við séum ekki áratugum saman eins og hamstrar á hjóli að spóla í sama hjólfarinu.