fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Frú forseti. Ég var að hefja umfjöllun um umhverfiskaflann í þessari fjármálaáætlun og þar er margt merkilegt að finna. Ég var aðeins byrjaður að fjalla um þá brellu sem ríkisstjórnin reynir að beita í umhverfismálum til að reyna að nálgast það að standa við fyrirheit sín um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og koma öllum þeim peningum sem settir hafa verið í málaflokkinn í lóg. Í áætluninni er að finna sérstaka áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá landi vegna endurheimtar votlendis, nokkuð sem ég var búinn að impra á hér í fyrri ræðum. Þar er áætlað, samkvæmt þessu, að samdrátturinn muni aukast úr sem nemur 32.057 kolefnisígildistonnum árið 2021 í 52.457 tonn árið 2023, á næsta ári, og 101.257.000 tonn árið 2027 þrátt fyrir að engar vísindalegar sannanir á að þetta gangi upp liggi fyrir, eiginlega þvert á móti, frú forseti. Ég ætla því að leyfa mér að fullyrða það að hér sé einfaldlega um fals að ræða, a.m.k. getur ríkisstjórnin ekki sýnt fram á vísindalega staðfestingu þessara talna. Aðrir hafa bent á að þetta séu tölur sem gangi ekki upp en eitthvað þurfti að gera því að ríkisstjórn í landi sem er hið umhverfisvænasta í heimi og framleiðir nánast alla sína raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum tók upp á því, ríkisstjórn þess lands, að ákveða að draga meira og hraðar úr losun gróðurhúsalofttegunda en líklega nokkurt annað land, a.m.k. að jafna met hinna bjartsýnustu eða áköfustu í þeim efnum. Og hvar var þá svigrúmið? Allar mannlegar athafnir losa koltvísýring eða aðrar gróðurhúsalofttegundir. Hvar er svigrúmið? Jú, þá var fundin upp sú brella að moka ofan í skurði og segja að með því væri verið að binda koltvísýring og draga úr losun. Þetta er svolítið eins og að setja tappa á flösku sem er orðin tóm og ímynda sér að hún fyllist þá aftur. En þetta er líka í raun svindl vegna þess að upphafsviðmiðin, sem ríkisstjórnin ætlar sér að bæta, tóku ekki mið af þessari meintu losun úr gróðurlendi svo að einhverju sem var ekki tekið með í reikninginn í upphaflegum viðmiðum á núna að lauma inn í millitíðinni til að halda því fram, á mjög vafasömum forsendum eins og ég rakti hér áðan, að þar með sé landið búið að draga meira úr eða farið að binda meira af gróðurhúsalofttegundum.
Því miður er þetta allt of lýsandi fyrir alla nálgun ríkisstjórnarinnar í rekstri ríkisins. Það er allt of mikið fiff í þessu. Og það stafar enn og aftur af hverju? Jú, sýndarmennsku, umbúðum, yfirlýstum markmiðum á kostnað innihalds og raunverulegra áhrifa þess sem gert er. Við sjáum þetta alveg gegnumgangandi í stefnu ríkisstjórnarinnar og í þessari fjármálaáætlun, ekki bara með peningana heldur líka með þetta fiff í náttúrunni.
Frú forseti. Ég sé að tíminn er aftur að renna frá mér og ég er rétt að komast af stað með umhverfismálin. Ég bið yður því að setja mig aftur á mælendaskrá.