fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir umræðurnar hérna í dag og í kvöld og vil halda til haga nokkrum atriðum núna þegar þessari umræðu er að ljúka. Það er mikilvægt að hafa í huga framvindu efnahagsmála nú um stundir. Við erum að koma út úr einum mestu efnahagsþrengingum í sögu lýðveldisins. Það, ásamt síbreytilegu ástand heimsmálanna sem ekki þarf að skýra hér, hefur valdið því að á þeim tveimur mánuðum sem liðnir eru frá því að tillagan var fyrst lögð fram hafa efnahagshorfur breyst umtalsvert miðað við þær forsendur sem lágu til grundvallar fjármálaáætluninni. Hvers vegna er ég að halda því til haga, virðulegi forseti? Jú, það er vegna þess að ég tel mikilvægt að umræðan hérna endurspegli það ástand sem ríkir og hefur ríkt í þjóðfélaginu. Í þessu samhengi vil ég þó árétta að það eru góð teikn á lofti og tilefni til bjartsýni. Þar má nefna að landsframleiðslan hefur aukist um tæp 9%. Atvinnuhorfur eru góðar og neysla heimilanna er að aukast. Ég ætla ekki að standa hérna og tala um neinar töfralausnir. Ástandið er einfaldlega að batna í takt við dvínandi áhrif heimsfaraldursins. Ferðaþjónustan er að komast aftur í fyrra horf með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á þjóðarbúið.
Það er hárrétt sem komið hefur fram í máli flestra hér í dag, að vegna heimsfaraldursins, vegna breytinga á skattkerfinu, t.d. lækkunar skattþrepa sem kemur best þeim sem lægstar tekjur hafa, hækkun persónuafsláttar, minni tekna af ökutækjum ásamt fleiru, hafa tekjustofnar ríkisins dregist saman. Þessu er öllu haldið á lofti í nefndaráliti meiri hlutans og í áliti fjármálaráðs, en það má þó ekki gleyma því í umræðunni að við töluðum jafnframt um tekjuöflun eftir ýmsum leiðum. Þetta þurfum við að gera á sama tíma og við spennum bogann ekki of hátt með tilheyrandi þensluhvetjandi aðgerðum þar sem því verður við komið og vinnum þannig gegn vaxandi verðbólgu.
Að þessu sögðu vil ég þakka nefndarmönnum, nefndarriturum fjárlaganefndar og hagfræðingi fyrir samstarfið þennan þingvetur sem hefur um margt verið krefjandi, enda um stór og flókin mál að ræða.