152. löggjafarþing — 89. fundur,  14. júní 2022.

fjarskipti .

461. mál
[00:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti í máli 461, frumvarpi til laga um fjarskipti. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun fjarskiptalöggjafarinnar og að innleidd verði hér á landi tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972 frá 11. desember 2018, um setningu evrópskra reglna um fjarskipti. Á ensku ber hún heitið European Electronic Communications Code Directive eða EECC-tilskipunin, sem einnig er vísað til almennt sem „Kóðans“.

Um er að ræða nýja grunngerð, þ.e. uppfærðar meginefnisreglur á fjarskiptamarkaði sem leysir af hólmi fjórar eldri gerðir. EECC-tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2021 frá 24. september 2021, með stjórnskipulegum fyrirvara. Sama dag var tekin upp í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um að koma á fót evrópskum hópi eftirlitsaðila á sviði fjarskipta og stofnun honum til stuðnings. Evrópskur hópur eftirlitsaðila á sviði fjarskipta, sem vísað er til sem BEREC-hópsins , er ráðgefandi og stefnumótandi samstarfsvettvangur sem ætlað er að stuðla að samræmdri innleiðingu og framkvæmd samevrópsks regluverks á fjarskiptamarkaði, svo sem með útgáfu leiðbeininga og ráðgjöf.

Í daglegu tali er vitnað til EECC-tilskipunarinnar og BEREC-reglugerðarinnar sem fjarskiptapakka Evrópusambandsins frá 2018. Alþingi samþykkti með lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021, heimild til handa ráðherra um innleiðingu BEREC-reglugerðarinnar með setningu reglugerðar. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar er stefnt að setningu hennar af hálfu ráðherra verði frumvarpið að lögum. Með því yrði fjarskiptapakki Evrópusambandsins innleiddur í íslenska löggjöf.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar árétta sérstaklega: Nefndin fjallaði um mikilvægi þess að löggjöf á hverjum tíma fylgdi tækniþróun og að heildarendurskoðun alls regluverks á fjarskiptamarkaði stuðlar að framförum, fjárfestingum, samkeppni, hagkvæmni, samnýtingu og vernd neytenda. Þá fjallaði nefndin um samstarf markaðsaðila þar sem með frumvarpinu er hvatt til aukins samstarfs markaðsaðila og sameiginlegra fjárfestinga við uppbyggingu innviða og tilteknum ívilnunum heitið þeim sem byggja upp innviði. Meiri hluti nefndarinnar áréttar mikilvægi samskipta og samstarfs við innviðauppbyggingu.

Að auki fjallaði nefndin um varðveislu gagna vegna rannsóknar sakamála en í 3. mgr. 89. gr. frumvarpsins er að finna ákvæði sem kveður á um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að varðveita ákveðna lágmarksskráningu gagna í sex mánuði í þágu almannaöryggis og rannsóknar sakamála. Ákvæðið er óbreytt frá gildandi fjarskiptalögum en það kom inn í lögin með breytingalögum nr. 78/2005. Meiri hluti nefndarinnar beinir því til ráðherra að taka til skoðunar svo fljótt sem auðið er hvort tilefni sé til að gera breytingar á greininni að teknu tillit til sjónarmiða um að tímamark varðveislu sé of stutt og bendir á að við þá skoðun skuli höfð hliðsjón af ákvæðum stjórnarskrár og alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga, er lúta m.a. að tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs, sjónarmiðum um meðalhóf og þróun evrópskrar löggjafar á sviði persónuverndar.

Jafnframt fjallaði nefndin um aðgang að ríkisstyrktum innviðum til að auka dreifingu fjarskiptasambands. Meiri hluti nefndarinnar beinir því til ráðherra að finna leiðir til að tryggja betri aðgang að ríkisstyrktum innviðum svo tryggt sé að þeir nýtist í raun til að efla fjarskiptaþjónustu og samkeppni á því sviði. Það er áréttað að fjárstuðningur ríkisvaldsins þarf að endurspeglast í verðskrám fyrir aðgang að umræddri þjónustu.

Loks þykir rétt að taka sérstaklega fram að frumvarpið hefur að geyma ýmis nýmæli sem eru til þess fallin að auðvelda og bæta aðstöðu stjórnvalda til að leggja mat á árangur og umbætur í lagaumhverfi fjarskipta og framkvæmd þess, bæði reglubundið og til framtíðar. Þegar við kemur sviði eins og fjarskiptum, þegar framfarir í tækni og þjónustu eru miklar, er mjög mikilvægt að stjórnvöld meti árangur reglubundið og geri tillögur að umbótum ef reynslan sýnir að umbóta sé þörf.

Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Þar sem um er að ræða innleiðingu á EES-gerð sem er bæði afar tæknileg og sérhæf voru breytingartillögur unnar í samvinnu við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og eftir atvikum Fjarskiptastofu. Meiri hluti nefndarinnar telur óþarft að rekja þær breytingar sem eru tæknilegar og sérhæfðar og tengjast beint þeirri innleiðingu sem hér um ræðir en rétt þykir að greina efnislega frá öðrum breytingartillögum.

Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar öryggishagsmuni vegna uppbyggingar farneta í 87. gr. en lögð er til viðbót við 2. mgr. 87. gr. þess efnis að þegar leyfi sem Fjarskiptastofa veitir samkvæmt 27. gr. eru bundin skilyrðum sem stuðla að fjölbreytni í gerð búnaðar sé horft á búnað allra fjarskiptafyrirtækja í heild sinni á landsvísu. Breytingunni er ætlað að skerpa orðalag ákvæðisins.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar áreiðanleiki neyðar- og öryggisfjarskipta í 95. gr. Lögð er til viðbót við stafliði 2. mgr. 95. gr. til þess að skerpa á lagastoð fyrir þeim reglugerðum sem ráðherra er heimilt að setja um áreiðanleika neyðar- og öryggisfjarskipta. Trygg neyðar- og öryggisfjarskipti eru forsenda þess að hægt sé að hefja og samræma aðgerðir viðbragðsaðila þegar vá ber að höndum. Í frumvarpinu eru á dreif ákvæði sem heimila ráðherra setningu reglugerða en ekki er ítarlegt ákvæði sem snýr að neyðar- og öryggisfjarskiptum. Meiri hluti nefndarinnar telur mikilvægt að heimildir ráðherra til að mæla fyrir um atriði tengd neyðar- og öryggisfjarskiptum í reglugerð séu allar á sama stað og leggur því til breytingar á ákvæðinu í þá veru.

Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Ingibjörg Isaksen, Orri Páll Jóhannsson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Þá er þessari tölu lokið um þetta mikilvæga og umfangsmikla mál.