fjarskipti .
Frú forseti. Ég fékk það hlutverk að fara hér mjög stuttlega yfir nefndarálit minni hluta sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson ritaði. Mig langar að hvetja fólk til að lesa þetta ítarlega nefndarálit, en það eru einna helst þrjú atriði sem bent er á í því. Ég ætla að byrja á þeim tveimur minni fyrst og taka síðan það stærsta.
Í 83. gr, um samninga netöryggissveitar og fjarskiptafyrirtækja, er ákvæði sem byggist á sambærilegu ákvæði í núgildandi lögum. Greinin felur í sér skyldu fyrir fjarskiptafyrirtæki til að ganga að samningum um uppsetningu búnaðar fyrir tæknilega vöktunarþjónustu að fyrirskipan netöryggissveitarinnar. Að mati minni hluta nefndarinnar væri rétt að taka til dálítið dýpri skoðunar nauðsyn og tilefni slíks ákvæðis þar sem mögulega gætu verið er hægt að nýta slíkan búnað til að njósna um þau samskipti sem eiga sér stað.
Í öðru lagi er í 3. mgr. 18. gr. að finna heimild til að víkja frá ákvæðum um lágmarksgildistíma tíðniréttinda. Þá komu athugasemdir fram við vinnslu frumvarpsins um að ekki væri að finna ákvæði um að geta heimildað notkun á tíðni og notkun á búnaði á neyðartímum sem komið er með erlendis frá. En nú fyrir nokkrum dögum samþykkti Alþingi einmitt ný almannavarnalög þar sem tekið var á því að hægt væri að koma með t.d. hunda og erlent hjálparlið og þarna er smáatriði varðandi það að það sé hægt líka.
Í þriðja lagi er talað um það sem má segja að stærsti hluti nefndarálitsins gangi út á, þ.e. gagnageymd, en henni má í einföldu máli lýsa sem því þegar lög skipa fjarskiptafyrirtækjum að geyma lágmarksupplýsingar um fjarskiptaumferð viðskiptavina sinna með tiltekin markmið í huga, aðallega ef nauðsynlegt verður síðar fyrir löggæsluyfirvöld að upplýsa tiltekið sakamál með því að nota fjarskiptagögnin sem sönnunargögn í málinu. Þar erum við aðallega að reyna að benda á að það er mikil hætta á því að verið sé að geyma gögn sem tengjast friðhelgi einkalífsins er mikil áhætta á því að hægt sé að misnota slík gögn ef utanaðkomandi aðilar komast yfir þau. Sum okkar munum eftir því þegar ráðist var á vefsíðu fjarskiptafyrirtækisins Vodafone 30. nóvember 2013 og SMS-skilaboð, bankaupplýsingar, lykilorð og ýmislegt annað komst þar út. Ég ætla bara að bjóða fólki að lesa næstu fjórar síður í nefndarálitinu sem fara mjög ítarlega í þetta mál og hvað þarf að hafa í huga.
Að framansögðu virtu leggur minni hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu, að við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, að við gildistöku laga þessara skipi ráðherra starfshóp til að endurskoða ákvæði XIII. kafla með hliðsjón af dómaframkvæmd innan EES-svæðisins í málum er varða friðhelgi einkalífs í fjarskiptum, sérstaklega hvað varðar áhrif 89. gr. á persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Auk fulltrúa ráðuneytis, Fjarskiptastofu og Persónuverndar skal þess gætt að innan starfshópsins séu sérfræðingar á sviði friðhelgi einkalífs í fjarskiptum. Starfshópurinn skal skila skýrslu til ráðherra með tillögum að þeim lagabreytingum sem nauðsynlegar kunna að vera eigi síðar en ári eftir gildistöku laganna.
Undir þetta ritar hv. þm. Andrés Ingi Jónsson.