152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

varamenn taka þingsæti.

[13:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hafa bréf frá Kristrúnu Frostadóttur, 3. þm. Reykv. s., og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, 8. þm. Reykv. n., um að þær verði fjarverandi á næstunni. Þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Ásmundur Friðriksson, 6. þm. Suðurk., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykv. s., Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 1. varamaður á lista Viðreisnar í Reykv. n., Jón Steindór Valdimarsson, og 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurk., Björgvin Jóhannesson. Rósa Björk og Jón Steindór hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa.