störf þingsins.
Forseti. Þetta er væntanlega síðasta skiptið í bili sem þessi dagskrárliður, störf þingsins, er á dagskrá. Ég vildi því kannski aðeins tala um störf þingsins. Ég heyri oft sagt: Af hverju virkar þingið eins og það gerir? Af hverju er ekki hægt að gera hlutina aðeins öðruvísi, svona eða hinsegin? Það er dálítið áhugavert svar við því. Ég hef aðeins fjallað um þetta áður í störfum þingsins en það er gott að ítreka það. Við erum með þannig stjórnarfyrirkomulag hér að meiri hlutinn ræður öllu. Allar spurningar um það hvernig hægt er að gera hlutina öðruvísi beinast því að meiri hlutanum. Allt sem stjórnarandstaðan gerir eru viðbrögð við því sem meiri hlutinn gerir. Frumkvæðið getur aldrei verið hjá stjórnarandstöðunni, það virkar ekki þannig af því að meiri hlutinn ræður öllu. Það þýðir ýmislegt. Meiri hlutinn segir kannski: Nei, við ætlum bara að gera þetta svona hvað sem tautar og raular og sama hvaða rök eru í málinu. Þá er það bara einn staður sem stjórnarandstaðan getur mætt á til að segja hlutina eins og þeir eru, stundum undir rós eða eitthvað álíka, og það er í þennan ræðustól. Þetta er eina tæki stjórnarandstöðunnar til að reyna að hafa einhver áhrif á stjórnarmeirihlutann og reyna að ná til þeirra í eitthvert samtal þegar ekkert samtal er í boði. Stundum er það þannig að það er einfaldlega verið að láta stjórnarandstöðuna svitna, það er einhver tregagangur í samningaviðræðum. Þá er það bara útkljáð í því hversu lengi stjórnarandstaðan þolir að tala í einhverju máli. Það þarf ekki að tengjast því máli sem verið er að ræða um. Það er bara einfaldlega svona: Hér er pattstaða og hún er leyst með því að einhver fer upp í ræðustól þangað til pattstaðan leysist. Það er dálítið merkilegt að átta sig á því (Forseti hringir.) hvað það þýðir í heildarsamhenginu. Það er, held ég, eitthvað sem við ættum að skoða aðeins betur, að hafa fleiri úrræði til þess að (Forseti hringir.) útkljá samninga en bara það að ræðustóll Alþingis sé flöskuháls.