störf þingsins.
Herra forseti. Í dag, 14. júní, er þess minnst í Eystrasaltsríkjunum að á þessum degi fyrir rúmum 80 árum var hafist handa við að flytja pólitíska andstæðinga burt frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen, hluta Póllands og Rúmeníu. Tugir þúsunda kennara, smákaupmanna, opinberra starfsmanna, landeiganda og annarra sem Sovétríkjunum þótti stafa ógn af, voru fluttir nauðugir í fangabúðir víðs vegar í Síberíu. Þar á meðal voru þúsundir barna og býsna stór hluti af öllu þessu fólki sneri aldrei aftur og endaði líf sitt í Gúlaginu. Þetta voru ömurlegir glæpir. Þessir nauðungarflutningar almennra borgara voru taldir glæpir gegn mannkyni af nefnd sem forseti Eistlands skipaði fyrir síðustu aldamót. Með þeim var gerð tilraun til þess að lama samfélagið í því skyni að það yrði leiðitamara undir ógnarstjórn Stalíns. Spor sögunnar hræða. Rússar hafa nú komið upp svokölluðum síunarherbúðum eða, með leyfi forseta, „filtration camps“, sem er einhvers konar skrautmál yfir fangabúðir. Að minnsta kosti 1 milljón úkraínskra borgara hefur ekki átt annarra úrkosta en að flýja stríðið til Rússlands. Það á t.d. við um marga íbúa borgarinnar Maríupol sem lögð var í rúst í látlausu sprengjuregni. Það eru ill örlög að vera komin upp á náð ofbeldismanna. Það er einmitt hlutskipti fólksins í síunarbúðunum sem sætir geðþóttaákvörðunum, að sögn mannúðarsamtaka. Fólk sem talið er tengjast úkraínska hernum hverfur sporlaust og aðrir mæta óþekktum örlögum í flóttamannaverum út og suður í Rússlandi. Nýtt Gúlag er í mótun. Ég leyfi mér af þessum sökum að vekja athygli þingheims, þar með talin hv. utanríkismálanefnd og hæstv. utanríkisráðherra, á stöðu stríðsflóttafólks frá Úkraínu í Rússlandi. Þetta fólk má ekki gleymast.