störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hér komum við saman á næstsíðasta degi þessa löggjafarþings. Næstu tvo sólarhringa munum við samþykkja á færibandi frumvörp og þingsályktunartillögur sem samið hefur verið um að klára fyrir þinglok. Næstum öll eiga þessi þingmál það sameiginlegt að þau eru stjórnarmál, skrifuð af ráðuneytum. Einungis fjögur mál skrifuð af þingmönnum, svokölluð þingmannamál, hafa hlotið þá náð að fá umfjöllun og afgreiðslu úr nefnd. Þessi fjögur mál með framsögumönnum frá fjórum mismunandi stjórnarandstöðuflokkum fá afgreiðslu úr nefnd sem hluti af þessum þinglokasamningum. Það er því miður þannig að undanfarin ár hafa nær engin þingmannamál fengið afgreiðslu á þinginu ef frá eru talin þau örfáu mál sem eru hluti af þinglokasamningum á hverju ári. Skiptir þá engu hversu góð málin eru eða hversu margir þingmenn eru meðflutningsmenn á málinu.
Virðulegi forseti. Þessi þróun er aðför að lýðræðinu. Mörg þingmannamál verða þannig til að kjósandi eða kjósendur hafa samband við þingmenn og benda þeim á brotalamir í kerfinu. Gott dæmi um þetta er þingmál hv. þm. Hildar Sverrisdóttur um tæknifrjóvgun, sem ég og þingmenn úr flestum flokkum erum meðflutningsmenn á. Þar er verið að uppfæra lög sem voru skrifuð á öðrum tímum þegar einungis konum giftum karlmönnum var leyft að nýta sér þessa tækni. En jafnvel þó að þarna sé um mikilvægar réttarbætur að ræða, jafnvel þótt þarna sé breiður hópur þingmanna úr öllum flokkum á bak við frumvarpið, þá er það eitt af hinum mörgu málum sem enda í grafreit góðra hugmynda nú við þinglok. Eina von okkar þingmanna sem höfum lagt fram 104 þingmannafrumvörp og 128 þingsályktunartillögur er að eitthvað af því sé pikkað upp af ráðuneytum og nýtt seinna.
Virðulegi forseti. Ég skora á formenn þingflokka og virðulegan forseta (Forseti hringir.) að finna leið til þess að lýðræðið fái að njóta sín og mál þau sem þingmenn leggja fram fái meiri athygli og (Forseti hringir.) góðar hugmyndir nái fram jafnvel þó að þær komi ekki frá lögfræðingum ráðuneytanna.