152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

störf þingsins.

[13:14]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég má til með að vara við því að hér er um endurtekið efni að ræða, jafnvel margendurtekið. Um árabil hefur verið viðtekin venja að afgreiða umsóknir um ríkisborgararétt, annars vegar fyrir þinghlé í desember og hins vegar fyrir þinglok í júní. Eins og margoft hefur verið bent á á yfirstandandi þingi hefur Útlendingastofnun, í skjóli hæstv. dómsmálaráðherra, ítrekað lagt stein í götu þingsins við afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt. Vegna þessa tókst þinginu ekki að afgreiða haustumsóknirnar fyrr en í lok aprílmánaðar. Voru uppgefnar ástæður stofnunarinnar þær að vinnuálagið væri svo mikið og hæstv. ráðherra sjálfur röflaði eitthvað um jafnræði í fjölmiðlum sem stóðst ekki neina skoðun.

Nú erum við á lokametrum þessa þings og enn hefur ekki tekist að fá nauðsynleg gögn vegna vorumsókna frá Útlendingastofnun sem henni ber lögum samkvæmt að afhenda þinginu. Hv. allsherjar- og menntamálanefnd óskaði skýringa á því hvers vegna gögnin hefðu ekki borist, hvort vinnuálagið væri enn að sliga stofnunina. Í svari Útlendingastofnunar segir hins vegar, í lok langrar ræðu um það hvernig stofnunin þætti sniðugast og best að fyrirkomulagið á umsóknarferlinu væri, með leyfi forseta:

„Þegar litið er til þess hóps sem fengið hefur veittan íslenskan ríkisborgararétt með lögum undanfarin ár má draga þá ályktun að umsagnir lögreglu og Útlendingastofnunar hafi takmarkað vægi þegar tekin er ákvörðun um veitingu af hálfu Alþingis.“

Á íslensku: Þið gerið ekki það sem við viljum og þá fáið þið ekki gögnin.

Það er því ekki bara samsæriskenning þeirrar sem hér stendur að raunverulegar ástæður fyrir því að Útlendingastofnun haldi þessum gögnum eftir frá þinginu séu pólitískar. Nú hefur það verið staðfest bæði skriflega og munnlega af hálfu Útlendingastofnunar. Það er ekki boðlegt að þingið mæti slíkum yfirgangi af hálfu stjórnsýslunnar, hvað þá þegar líf fólks er í húfi. Það er heldur ekki boðlegt að þingið fari í sumarfrí fyrr en þetta mikilvæga mál hefur verið afgreitt. Hér hangir líf fólks á bláþræði.