störf þingsins.
Herra forseti. Innrás Rússa í Úkraínu hefur nú þegar haft gríðarleg áhrif og ekki bara á líf milljóna Úkraínumanna sem hafa dáið eða flúið heimili sín í fjölmennustu og hröðustu fólksflutningum í 75 ár. Innrás Rússa hefur einnig ótrúlega neikvæð áhrif á fæðuöryggi fólks um allan heim, á efnahagsástand margra ríkja og er að umbylta orkumálum í Evrópu og víðar. Þrátt fyrir allt hefur Evrópa ekki áður sýnt sterkari samstöðu en nú gegn ófyrirgefanlegu framferði Rússlandsforseta. Evrópa hefur sjaldan unnið eins þétt saman að hröðum viðbrögðum og í mannúðarkrísunni síðustu þrjá mánuði, eða rúmlega það. Evrópa hefur sýnt sínar bestu hliðar og byggt á þeim grunni og gildum sem sameinast var um í kjölfar hörmunga síðustu aldar. Hvar viljum við vera í þessari samstöðu þjóða sem við berum okkur saman við? Viljum við vera hluti af sterkri heild eða halda okkur áfram á jaðrinum með sérhagsmuni fárra að leiðarljósi? Þegar forystufólk stjórnmálaflokka sem styðja aðild að Evrópusambandinu töluðu um nauðsyn Evrópusamvinnu og að endurnýja aðildarumsókn Íslands hlupu formaður Sjálfstæðisflokksins og þingmenn hans fram og reyndu að kæfa umræðuna í fæðingu. Það gæti skapað tóm vandræði að spyrja þjóðina.
Herra forseti. Hvar er Evrópustefna þriggja ríkisstjórnarflokka gagnvart Evrópu á tímum þegar ógn steðjar að Evrópu og þeim gildum sem verið hafa grunnur að endurreisn í kjölfar heimsstyrjalda? Er ekki kominn tími til að hefja vinnu við Evrópustefnu Íslands? Við þurfum að ræða hvernig við sjáum fyrir okkur samstarf við Evrópuríki, að öðru leyti en því sem snýr að innleiðingu á reglugerðum EES. Við þurfum að ræða dýpra og sterkara samstarf við vinaþjóðir okkar, stærsta markaðssvæði okkar, nánara samstarf á sviði loftslagsmála, mannréttinda, vísinda, nýsköpunar og þekkingar og ekki síst nánari samvinnu um þekkingu og eflingu lýðræðis og réttarríkisins.
Herra forseti. Ég skora á þingheim að taka umræðuna og beita sér fyrir því að styrkja stöðu Íslands í Evrópusamvinnu og alþjóðastarfi, ekki flæmast undan áróðri og óttastjórn hagsmunaaflanna í enn eitt skiptið.