152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

störf þingsins.

[13:23]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Í greinargerð með fjárlagafrumvarpi ársins 2022 kom skýrt fram að atvinnuleysisbætur yrðu hækkaðar um 4,6%, um sömu prósentutölu og greiðslur almannatrygginga. Við hér á Alþingi gerðum ráð fyrir þessu þegar fjárlögin voru afgreidd og ekki datt mér annað í hug en að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, myndi haga reglugerðarbreytingum um fjárhæð atvinnuleysistrygginga til samræmis við það. Hvað gerðist svo? Jú, án þess að mikið bæri á því, og án þess að nokkur umræða færi fram um það hér á Alþingi eða í samfélaginu, þá hækkaði hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra grunnatvinnuleysisbætur miklu minna, ekki um 14.000 kr. eins og Alþingi ætlaðist til heldur um 6.300 kr. Síðan hafa bæturnar fengið að rýrna að raunvirði eftir því sem verðbólgan hefur rokið upp. Hvað gerðist svo þegar ríkisstjórnin lét loksins undan þrýstingi stjórnarandstöðunnar og kynnti mótvægisaðgerðir vegna verðbólgunnar? Jú, þá var aftur ákveðið að skilja atvinnuleitendur eftir, hóp sem er með lægstu tekjurnar á Íslandi og er þannig sérstaklega berskjaldaður fyrir hækkandi matvæla-, eldsneytis- og húsnæðiskostnaði.

Virðulegi forseti. Þetta er alveg ótrúlega ómerkilegt, þetta er bara mjög ómerkileg framganga. Ég ætla að biðla til þingmanna í meiri hlutanum að banka í hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, skora á hann að leiðrétta þetta strax með reglugerðarbreytingu og helst áður en þing fer heim. Gerið það nú, þingmenn meiri hlutans, bankið í hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra. Sameinumst um að leiðrétta þetta og fylgja forsendum fjárlagaársins 2022. Þó það nú væri.