störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú fer þessum fyrsta þingvetri mínum að ljúka. Það hefur verið mikil ánægja að vinna með ykkur og verða vitni að því frá fyrstu hendi hversu mikið alþingismenn þjóðarinnar brenna fyrir því að betrumbæta samfélagið okkar. Þeir vilja styðja við foreldra sem missa barn, styðja við nýsköpun og styrkja stöðu lántaka og leigjenda. Þeim er annt um velferð dýra og um umhverfið. Alþingismönnum er umhugað um geðheilsu þeirra sem vinna við að hjálpa öðrum, vilja jafna stöðu fólks á vinnumarkaði og auðvelda og einfalda aðgengi að tæknifrjóvgunum. Þingmenn eru auðvitað ekki alltaf sammála og kannski sjaldnast, sérstaklega um leiðir að settu marki en þeim gengur gott til. Munurinn á hugarfari þingmanna, hugsunarhætti og hugsjónum kemur hins vegar vel í ljós þegar við ræðum fjármálaáætlun næstu ára hér á þinginu. Þjóðin hefur glímt við næstmesta efnahagsáfall seinni tíma og það er ljóst að aðgerðir hafa skilað árangri og efnahagurinn hefur tekið hratt við sér. Hins vegar stafar okkur ógn af verðbólgu og versnandi efnahagshorfum í heiminum. Hvernig eigum við að bregðast við því? Hér heyrast raddir þar sem amast er við skattalækkunum undanfarinna ára, hækkun frítekjumarks og lækkun gjalda; aðgerðir sem stjórnvöld geta sannarlega hreykt sér af enda byggja þessar fortölur á hugmyndum um að samfélagskakan séu óbreytanleg stærð og ágreiningurinn snúi aðeins að því hvernig eigi að skipta henni. Efnahagsstjórn undanfarinna ára hefur hins vegar sannarlega stækkað kökuna. Um það verður ekki deilt. Hins vegar mættu stjórnvöld standa sig mun betur þegar kemur að aðhaldi og hagræðingu. Þar mætti vera meira af harða hægrinu og ég hvet þau til að sitja á eilífri þörf til að hækka skatta og gjöld þegar kreppir að og fara einfaldlega betur með þær tekjur sem við heimtum af fólkinu í landinu.