152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

störf þingsins.

[13:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Nú síðustu daga sat ég þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins. Þetta var í 31. skipti sem slík ráðstefna er haldin en í þessum klúbbi sitja Eystrasaltslöndin, þ.e. Eistland, Lettland, Litháen, og Pólland, Þýskaland, Rússland og Norðurlöndin öll, líka Ísland og Noregur, þar tengjumst við nú Eystrasalti. Þetta var sögulegur fundur vegna þess að Rússar hafa verið aðilar að þessari þingmannaráðstefnu. Við höfum þegar fordæmt árásir Rússa á Úkraínu harðlega en á þessum fundi voru Rússar hreinlega reknir úr klúbbnum. Stofnsamþykktum var breytt með þeim hætti að Rússar geta ekki verið aðilar að þingmannaráðstefnu Eystrasaltsríkjanna fyrr en verulegar breytingar hafa átt sér stað innan Rússlands. Þetta gátum við öll verið sammála um. Það sem kom mér reyndar meira á óvart var að tillögur okkar Íslands að efni inn í ályktun fundarins, sem ég og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson stóðum fyrir, voru líka samþykktar, en þar er skorað á ríkisstjórnir Eystrasaltssvæðisins að vernda réttindi og tryggja öryggi flóttamanna, þjóðernislegra minnihlutahópa, hinsegin fólks, kvenna, barna, aldraðra og annarra viðkvæmra hópa sem eru í sérstakri hættu á stríðstímum. Við vorum þakklát fyrir að þessi ályktun var samþykkt. Þar kom jafnvel enn meira á óvart að tillaga okkar um að skora á ríkisstjórnirnar að verja kynheilbrigði og sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama var líka samþykkt. Ég tel þetta mikinn sigur og mig langar að hvetja hv. þingmenn sem nú fara á ráðstefnur erlendis og hafa míkrófóninn að tala fyrir þessum sjálfsögðu kvenréttindum sem íslenska þingið hefur staðið vörð um. Ég veit að hv. þm. Helga Vala Helgadóttir er að leggja slíka tillögu fyrir ársfund ÖSE-þingsins og ég mun að sjálfsögðu styðja hana.