152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Sigríður Elín Sigurðardóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að snerta á tveimur málum í jómfrúrræðu minni, annars vegar á leigubílamarkaðinum þar sem kvaðir og aðgangshindranir hafa skapað raðir og biðtíma sem gefa íslenskum leigubílamarkaði algjöra falleinkunn í alþjóðlegum samanburði. Á þessu vöktu ungir Sjálfstæðismenn athygli með ókeypis skutli um síðustu helgi og fá hrós fyrir. Þótt leigubílafrumvarp hæstv. innviðaráðherra sé í áttina finnst mér of skammt gengið. Miklar hömlur eru á rekstrarformi þar sem leyfishafar skulu áfram vera einstaklingar og þeir skulu vera skráðir eigendur og umráðamenn bifreiðar. Áfram eru gerðar kröfur um gjaldmæli og að standast þurfi leigubílstjóranámskeið sem aðeins fer fram á íslensku. Við þurfum ekki að hræðast frelsi á leigubílamarkaði. Það nægir að horfa til nágrannaríkja sem hafa opnað á fjölbreytt rekstrarform með góðum árangri. Þar að auki er góður leigubílamarkaður ekki eitthvað sem gott er að hafa heldur algjört öryggismál, sérstaklega fyrir konur sem eru bókstaflega fastar á skemmtanalífinu, komast ekki heim og það er kannski tveggja tíma bið eftir leigubíl.

Mig langar líka aðeins að ræða um heilbrigðismálin sem heilbrigðisstarfsmaður. Staða í geðheilbrigðismálum er grafalvarleg og tilfellum hefur fjölgað mjög. Við sem erum í þessum sal verðum að tryggja betri þjónustu við þessa sjúklinga. Bráðamóttaka geðdeildar er aðeins opin frá 12–19 á virkum dögum og frá 13–17 á frídögum. Utan opnunartíma er fólki beint á bráðamóttökuna sem er að springa undan álagi, fyrir utan það þá eiga þessir sjúklingar ekkert heima á bráðamóttökunni heldur þurfa sérhæfðari aðstoð. Ég bind miklar vonir við vinnuhóp á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem vinnur að aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum því við þurfum að gera svo miklu betur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)