152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta skjal, fjármálaáætlun, er ekkert eins og það á að vera. Samkvæmt lögum um opinber fjármál vantar ýmislegt í það til þess að þing og þjóð hafi í rauninni hugmynd um hver stefna stjórnvalda er til næstu fimm ára. Það er ekkert útskýrt hvernig þetta muni leggja grunn að einhverjum efnahagslegum stöðugleika til framtíðar. Eins og er lýst hérna í máli formanns fjárlaganefndar verður bara gripið til einhverra aðgerða ef svo ber við, þessi klassísku viðbragðsstjórnmál, ekkert byggt í rauninni á neinni stefnu um þróun efnahagsmála. Það er enginn grundvöllur í því sem er verið að fjalla um í þessari fjármálaáætlun. Það er bara umfjöllun um ýmislegt sem getur farið á hinn eða þennan veg en það eru engar ákvarðanir. Það er það sem stefna stjórnvalda er, ákvörðun um það hvernig á að fjármagna sameiginleg verkefni. Það er enga slíka ákvörðun hér að finna. Ef eitthvað er þá er þetta niðurstaða um (Forseti hringir.) eitthvað sem nær ekki markmiðum neins málaflokks, sem er svo skrýtið. (Forseti hringir.) Ég, og við Píratar, verðum á rauðu á þessari fjármálaáætlun. (Forseti hringir.) Hún er ekki samkvæmt lögum um opinber fjármál.