fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Herra forseti. Í breytingartillögum í tengslum við fjármálaáætlun 2023–2027 eru kynntar tillögur um upptöku varaflugvallagjalds sem hugsað er til nýframkvæmda og viðhalds varaflugvallakerfis landsins. Hér er fyrst og fremst verið að horfa til Reykjavíkurflugvallar, Egilsstaðaflugvallar og Akureyrarflugvallar. Hér er horft til skýrslu starfshóps sem fjallaði um uppbyggingu flugvallakerfisins og eflingu innanlandsflugs frá árinu 2018 og nefndarálits meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar vegna samgönguáætlunar 2020–2024. Hér er um mikilvægar tillögur að ræða í tengslum við uppbyggingu varaflugvallakerfisins. Fjármögnun flugvallakerfisins alls hefur verið í miklum ólestri í rúman áratug eftir að þáverandi varaflugvallagjald var lagt af, að mig minnir um mitt ár 2011. Við það minnkaði fjármagnið sem varið hefur verið til nýframkvæmda og viðhalds fjórfalt og skapaðist mikið ófremdarástand í framhaldi af því. Nú horfum við til betri framtíðar í tengslum við þessi mál. Þessari tillögu ber að fagna og vitanlega styð ég fram komna fjármálaáætlun.