fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegu forseti. Fjármálaáætlun er ætlað að búa til ramma utan um fjármál ríkisins til næstu ára og ég fæ ekki séð að þessi áætlun sé að ná þeim markmiðum sem að er stefnt hvað það varðar. Mér sýnist að við séum hvorki að ná utan um tekjuramma né gjaldaramma í þessari fjárhagsáætlun og mig langaði í þessu tilviki að nefna stöðu Landspítalans. Einfaldur útreikningur sýnir miðað við áætlanir stjórnenda spítalans að hann þurfi að vaxa um 2% á ári og það þýðir vöntun upp á 8–9 milljarða á þessu tímabili. Þessi fjármálaáætlun speglar ekki þann raunveruleika sem við okkur blasir á þessum tímapunkti og því mun Viðreisn ekki styðja þessa áætlun.