152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka fyrir ágætissamstarf við nefndina, ekki síst vegna breytingartillagna sem ríkisstjórnin sendi til nefndarinnar hér undir lok þingstarfanna og sýndi þar með í verki mjög ríkan vilja til þess að leggja þyngra lóð á vogarskálarnar til að sporna gegn áhrifum verðbólgunnar á hag heimila og fyrirtækja í landinu. Þegar þessi fjármálaáætlun er skoðuð á heildina litið eru bara nokkuð bjartir tímar fram undan. Ég heyri eins og vant er marga þingmenn kvarta undan því að ekki sé nægilega margt á útgjaldahliðinni. Aðrir tala um það að hér sé undirliggjandi halli og þess vegna vilja þeir hækka skatta en síðan í næsta orði koma þeir með hugmyndir um að eyða öllum nýjum tekjum sem skattarnir áttu að tryggja í ný útgjaldatilefni. Auðvitað er endalaust hægt að tala hérna (Forseti hringir.) um útgjaldatilefni en aðalatriðið er að við erum að byggja sterkt samfélag, við erum að huga að grunnstoðunum og við erum að gera það á sjálfbæran hátt.