152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:27]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um litlar breytingar sem skipta þó miklu máli. Við erum að tala um 3,5 milljarða á ári næstu fjögur árin til sjúkrahúsþjónustu. Við erum að tala um 300 milljónir til SÁÁ og við erum að tala um 10 milljarða á ári næstu fjögur árin fyrir öryrkja, peninga sem þeir áttu að vera búnir að fá fyrir lifandis löngu. Það hefði getað skipt smá máli í þeirri óðaverðbólgu sem nú er að þeir hefðu haft þetta. Á sínum tíma var gerður samningur við aldraða og krónu á móti krónu skerðing þeirra tekin en öryrkjar voru skildir eftir. Ríkið er búið að spara tugi milljarða á þessu tímabili. Við erum að fara fram á að það skili þeim.