fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegur forseti. Það liggur fyrir að ráðast þarf í endurskipulagningu á tekjustoðum ríkissjóðs ef við ætlum að reka hér velferðarþjóðfélag sem stendur undir nafni. Okkar afstaða er skýr og hún birtist í nefndaráliti og grundvallarvandinn verður ekki leystur með einhverjum stökum breytingartillögum frá minni hlutanum, sem verða auðvitað allar felldar eins og venjulega. Við teljum mikilvægt að umræða um fjármálaáætlun taki á stóru myndinni til næstu ára og ákváðum því að útfæra ekki aðgerðir í smáatriðum sem sjálf ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn hafa reyndar ekki treyst sér til að útfæra. Víða má finna óútfærðar tekju- og útgjaldaaðgerðir í þessari áætlun, t.d. eru tugmilljarða breytingartillögur sem komu inn í síðari umræðu. Þær eru ekki einu sinni sundurliðaðar eftir því hvort um rekstrarútgjöld eða fjárfestingarútgjöld er að ræða. Þetta er í þannig henglum að við ætlum ekki að taka þátt í svona leik.