152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

efjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.

513. mál
[14:31]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Áður en breytingartillögur meiri hlutans komu fram vonuðum við að kannski yrði brugðist við málefnalegum athugasemdum og það kæmi kannski viðbótarfjármagn til að mæta vanda heilbrigðiskerfisins þótt ekki væri nema bara til að standa undir nauðsynlegum raunvexti vegna öldrunar, fólksfjölgunar og aukinnar hjúkrunarþyngdar. Ég hélt kannski, í ljósi yfirlýsinga hæstv. innviðaráðherra um aukna húsnæðisuppbyggingu, 4.000 íbúðir á ári og fyrirhugað rammasamkomulag milli ríkis og sveitarfélaga, að horfið yrði frá niðurskurðinum í húsnæðismálum. Ja, eða kannski að kerfisbundinn halli á rekstri þjónustu við fatlað fólk yrði leiðréttur að einhverju marki. En, nei, ef eitthvað er hefur ríkisstjórnin bara forherst í sinni fjársveltistefnu gagnvart almannaþjónustunni. Það er það sem við sjáum hér í breytingartillögum.