fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Forseti. Það eru áhugaverðar breytingartillögur hjá meiri hlutanum. Þær eru einhverjar svona aðhaldstillögur út af ástandinu en mestur hlutinn af því felst í rauninni bara í því að stroka burt peninga í t.d. fjárfestingar sem hefðu ekki nýst hvort eð er, þannig að það er í rauninni ekkert aðhald en það er málað upp sem aðhald sem er dálítið skrýtið.
Svo eru aðgerðir gegn verðbólgu sem eru beinlínis til þess fallnar að hækka verðbólgu. Það eru greiningar um að krónutölugjöldin hækki verðbólgu um 0,2%. Þetta er svona skrýtin blanda sem er rosalega, eins og ég sagði áðan, ómarkviss leið til að ná markmiðum, stefnu stjórnvalda. Það er engin stefna hérna sem við erum að tala um. Þetta eru allt handahófskennd viðbrögð við ástandi eins og gengur og gerist en ekki stefna stjórnvalda eins og hún á að koma fram í fjármálaáætlun. Við erum alltaf að tala vitlaust mál hérna. Þegar ríkisstjórnin getur ekki ákveðið sig þá lendum við í því að fá í rauninni stærstu fjármálaáætlun hingað til, sem er ekkert nema einhvers konar orðasalat um hvað sé hægt að gera hingað eða þangað og svoleiðis en engin ákvörðun tekin, það er það sem vantar.