fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
Virðulegi forseti. Hér í þessari töflu, sem er rekstraryfirlit fyrir hið opinbera, sést að breytingartillögur sem við höfum verið að leggja fyrir þingið og eru orðnar tillögur meiri hluta fjárlaganefndar, munu stöðva hallareksturinn. Því er það bara rangt sem hefur komið fram í umræðunni í dag að vandanum verði velt inn í framtíðina. Hérna kemur einmitt fram að heildarrekstrarafkoma hins opinbera verður komin í jafnvægi í lok áætlunartímans. Hér er sem sagt verið að leggja fram markvissar tillögur sem skipta máli fyrir alla á Íslandi til þess að draga úr verðbólgu og koma skuldahlutföllum í heilbrigða stöðu. Við erum að draga úr skuldastöðunni hjá hinu opinbera um heil 3 prósentustig miðað við það sem áður var lagt upp með. Það eru hátt í 100 milljarðar, ætli það sé ekki svona 80 milljarða lægri skuldastaða í þessu tilviki. Hérna er verið að leggja fram ábyrgar tillögur sem skila raunverulegum árangri í samfélagi þar sem lífskjör eru góð og verða það áfram.