152. löggjafarþing — 90. fundur, 14. júní 2022.
fjármálaáætlun fyrir árin 2023--2027.
513. mál
Virðulegur forseti. Vegna orða hæstv. fjármálaráðherra finn ég mig knúna til að koma hingað upp og segja: Það er pólitísk ákvörðun að vanfjármagna heilbrigðiskerfið og aðra innviði. Fjármagn til heilbrigðiskerfisins er ekki bara útgjöld heldur er það fjárfesting í heilsu fólks. Ríkisstjórnin er að vanfjármagna heilbrigðiskerfið og vanrækja þessar skyldur sínar.