152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjarskipti .

461. mál
[14:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Í 3. mgr. 89. gr. er almenn og gríðarlega víðtæk skylda lögð á fjarskiptafyrirtæki að geyma upplýsingar um alla fjarskiptaumferð allra Íslendinga í sex mánuði. Þetta er gert í þágu rannsóknarhagsmuna og var sett inn að beiðni lögreglu á sínum tíma. En sambærilegar reglur úti í Evrópu, þaðan sem þessi hugmynd er upprunnin, hafa ja, kannski eðlilega lent í vandræðum þegar kemur að Evrópudómstólnum, þegar kemur að hugmyndum um friðhelgi einkalífs, þegar kemur að hugmyndum um persónuvernd. Allt þetta hefur þróast á þeim árum síðan þetta ákvæði kom inn í regluverkið. Þingmenn Pírata hafa lagt til að fella þetta út, það var gert fyrir nokkrum árum. Tjáningarfrelsisnefnd forsætisráðherra lagði til að fella þetta út einmitt vegna þess að þetta getur verið svo hættulegt verkfæri. Á grundvelli þessara upplýsinga er hægt að teikna upp ótrúlega nákvæma mynd af einkalífi hvers einasta Íslendings og í röngum höndum eru þær upplýsingar hættulegar. Þetta er ákvæði sem verður að endurskoða þótt ekki vilji þingheimur fella það úr gildi akkúrat strax. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)