152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjarskipti .

461. mál
[14:58]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hér rétt áðan féllst þingheimur ekki á að fella brott 3. mgr. 89. gr. laganna. En hvað með að endurskoða hana? Hvað með að leggjast yfir hana út frá persónuvernd og friðhelgi einkalífsins, út frá því hvort það sé kannski eðlilegt út frá gagnageymd að þær upplýsingar sem geymdar eru um fjarskiptaumferð einstaklinga séu greindar í sundur eftir því hvers eðlis þær eru? Að sumar tegundir þessara upplýsinga séu geymdar skemur en aðrar? Að það sé metið hvort það eigi kannski að binda þetta einhverjum hópum eða einhverjum landsvæðum eins og er í sumum löndum? Þetta er úrelt ákvæði sem er löngu kominn tími á að skoða út frá þróun mannréttinda, þróun tjáningarfrelsis, friðhelgi einkalífs og persónuverndar á síðustu áratugum eða bara áratug. Tillaga mín í þessari breytingartillögu er að það sé gert. Skrýtið að það sé ekki einu sinni hægt að fá það í gegn. Ég hefði ekki haldið að það væri til of mikils mælst að skoða ákvæði sem er komið á tíma út frá þróun mannréttinda.