tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir frumvarpi til breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, varðandi framlög úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Frumvarpið er lagt fram að beiðni innviðaráðuneytisins vegna verkefnisins Römpum upp Ísland. Tilgangur verkefnisins er að bæta aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi með því að koma upp römpum eða tryggja aðgengi með öðrum hætti. Markmið verkefnisins er að byggja 1.000 rampa um allt land á næstu fjórum árum en um er að ræða mikilvægt jafnréttismál og brýnt að hið opinbera geti komið að stuðningi þess.
Þess skal einnig getið að öll nefndin var sammála um að taka vel í beiðni innviðaráðuneytisins og flytja þetta mál. Hv. umhverfis- og samgöngunefnd hefur oft tekið þessi mál upp að sínu eigin frumkvæði til þess að vekja athygli á aðgengismálum hreyfihamlaðra. Því var það auðsótt mál að nefndin myndi leggja verkefninu lið með þessum hætti.
Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var komið á fót í tengslum við yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga þann 1. janúar 2011. Hlutverk sjóðsins var að taka yfir réttindi og skyldur tengdar fasteignum í eigu ríkisins sem nýttar höfðu verið í þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt tók sjóðurinn yfir eignir, réttindi og skyldur framkvæmdasjóðs fatlaðra sem var lagður niður. Fasteignasjóðurinn er rekinn innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og kveðið er á um hlutverk hans og markmið í 13. gr. b í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Með lögum nr. 9/2018 var lögum um tekjustofna sveitarfélaga breytt og fasteignasjóði falið það hlutverk að veita sveitarfélögum framlög vegna uppbyggingar eða breytinga á fasteignum sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar eða sértækar stuðningsþarfir. Með lögum nr. 37/2020, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru (frekari aðgerðir), var hlutverk sjóðsins víkkað enn frekar. Veitir hann nú sveitarfélögum einnig framlög vegna úrbóta í ferlimálum fatlaðs fólks, einkum hvað varðar aðgengi að fasteignum, mannvirkjum og útisvæðum á vegum sveitarfélaga.
Í ljósi þess að framlög vegna verkefnisins Römpum upp Ísland munu ekki renna með beinum hætti til tiltekins sveitarfélags og þar sem verkefnið mun ekki fela í sér uppsetningu á römpum eingöngu við fasteignir eða svæði sem eru á vegum sveitarfélaga, eins og áskilið er í 1. og 3. mgr. áðurnefndrar 13. gr. b laga um tekjustofna sveitarfélaga, er nauðsynlegt að leggja fram þetta frumvarp. Með því verður fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga veitt skýr lagaheimild til að veita árlegt framlag vegna þessa verkefnis, allt að 50 milljónir kr., í samtals fjögur ár. Ekki er því gert að skilyrði að framlagið renni til tiltekins sveitarfélags eða til fasteigna, mannvirkja eða útisvæða á vegum sveitarfélaga.
Áréttað er að um er að ræða heimild en ekki skyldu til að veita umrætt framlag. Jafnframt er gert ráð fyrir að framlagið muni byggjast á samningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við þá aðila sem halda utan um verkefnið og að í slíkum samningi verði fjallað um réttindi og skyldur aðila.
Ég tel líka rétt að þakka fyrir þetta mikilvæga verkefni. Við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd munum halda áfram að fylgjast með þessu verkefni sem og öðrum verkefnum af þessu tagi og taka upp frumkvæðismál sem snúa líka að eftirliti með uppbyggingu og öðru slíku og hvernig megi auðvelda þetta. Það kom líka fram í umræðum fyrir nefndinni að það væri mikilvægt að sveitarfélögin og opinberir aðilar bæru ábyrgð á sínum stöðum og tryggðu þar aðgengi.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að að lokinni þessari umræðu gangi frumvarpið beint til 2. umr.