152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir áliti 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem sú sem hér stendur undirritar. Um gestakomur og fjölda umsagna um þá tillögu sem hér um ræðir er vísað til inngangs í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.

Markmið laga nr. 48/2011 eru samkvæmt 1. gr. þeirra að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta og annarra gilda sem varða þjóðarhag, svo og hagsmuna þeirra sem nýta þessi sömu gæði, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, rammaáætlun, er því mats- og skipulagsverkfæri stjórnvalda, rammaáætlun um það hvort, hvar og hvernig raforku er aflað á Íslandi. Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að rammaáætlun nýtist ekki til að ákvarða orkuþörf hér á landi og afgreiðsla hennar á Alþingi tryggir ekki aukna raforkuframleiðslu til orkuskipta eins og stundum er haldið fram. Það verður aðeins gert með nauðsynlegum breytingum á raforkulögum.

Eins og frá hefur verið greint er áætlunin, 3. áfangi hennar í þessari tillögu, nú lögð fram í fjórða sinn á Alþingi. Fyrst var hann lagður fram 2016 en frá árinu 2017, árslokum 2017, hafa Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð myndað samsteypustjórn sem ekki hefur náð pólitískri samstöðu um að ljúka afgreiðslu 3. áfangans fyrr en nú. Á daginn kemur að sú samstaða er dýru verði keypt í ljósi þeirra miklu náttúruverndarhagsmuna sem meiri hlutinn hyggst stefna í tvísýnu verði breytingartillögur hans samþykktar. Áralöng töf á afgreiðslu 3. áfanga rammaáætlunar hefur skaðað almenna umfjöllun um hana á fleiri en eina vegu. Annars vegar hefur töfin verið nýtt til að tala niður gildi þess að slík áætlun sé gott tæki til að stýra uppbyggingu orkuöflunar hér á landi. Hins vegar hafa viðhorf til einstakra virkjunarkosta og þeirrar náttúruverndarhagsmuna sem undir eru einnig þróast og þá undantekningarlaust í þá átt að gildi verðmæti þeirrar náttúru sem gæti raskast hafi vaxið. Það er von mín að 4. áfangi áætlunar um vernd og orkunýtingu verði lagður fyrir Alþingi á næsta löggjafarþingi. Einnig skal tekið undir þau sjónarmið sem fram koma í áliti meiri hlutans að betur færi á því að leggja færri kosti fyrir Alþingi í hverjum áfanga. Fyrir liggur í drögum að tillögum verkefnisstjórnar 4. áfanga og 5. að færri kostir eru til umfjöllunar og ætla má að það gæti einfaldað og hraðað afgreiðslu málsins í framtíðinni.

Hér skal líka áréttað, líkt og meiri hluta nefndarinnar gerir, að samkvæmt lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, eru tillögur verkefnisstjórnar ekki bindandi fyrir ráðherra. Í lögunum er kveðið á um hvernig skuli unnið að áætluninni á stjórnsýslustigi þar til tillagan er lögð fram á Alþingi. Alþingi er því ekki heldur bundið af tillögum verkefnisstjórnar og getur gert tillögur til breytinga á fyrirliggjandi þingsályktunartillögu. Tillögur til breytingar þarf að sjálfsögðu að styðja með málefnalegum rökum en afgreiðsla hvers áfanga og lokaniðurröðun kostanna í verndar-, bið- eða nýtingarflokk er þegar allt kemur til alls á ábyrgð Alþingis.

Rúmur áratugur er liðinn frá gildistöku laganna og tímabært og skynsamlegt að hefja endurskoðun á löggjöfinni í ljósi reynslunnar, m.a. með tilliti til vaxandi vægis náttúruverndar, aukinnar vísindalegrar þekkingar og annarra gildra hagsmuna, svo sem aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og tilkomu ferðaþjónustunnar sem undirstöðuatvinnugreinar hér á landi.

Fyrsti minni hluti er ósammála meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um að fresta þurfi friðlýsingarferli vegna tiltekinna kosta sem eru í verndarflokki í fyrirliggjandi tillögu þar til lögin sem hér um ræðir hafa verið endurskoðuð. Þar er vísað til virkjunarkostanna Fljótshnúksvirkjunar og Hrafnabjargavirkjunar A, B og C í Skjálfandafljóti. Seinkun friðlýsingarferlisins myndi grafa undan sessi þessara kosta í verndarflokki og ekki síður undan trúverðugleika ferlisins.

Fagna ber því sérstaklega að samkomulag sé um það í umhverfis- og samgöngunefnd að kostir sem Orkustofnun lagði fram að eigin frumkvæði skuli kallaðir til baka og fjarlægðir úr biðflokki áætlunarinnar. Um er að ræða kosti sem enginn hefur óskað eftir mati á, m.a. um virkjunarkosti á Torfajökulssvæðinu, í laxveiðiám á Austurlandi o.fl., samanber skýringarmynd í nefndaráliti meiri hlutans. Um er að ræða 28 virkjunarkosti, ýmist til nýtingar vatnsafls eða jarðhita, sem Orkustofnun fól verkefnisstjórn að fjalla um á grundvelli heimildar í lögunum frá 2011. Þessi breyting einfaldar vinnu rammaáætlunar til framtíðar. Það er alla vega mín skoðun að það hafi þrátt fyrir að það sé heimildarákvæði í lögunum á margan hátt verið óeðlilegt að Orkustofnun skyldi leggja þessa kosti til. Það er eðlilegra að fyrirtæki sem ætla sér í framkvæmdir leggi kostina fram og þeir fari síðan í matsferli.

Í nefndu nefndaráliti meiri hlutans segir orðrétt, með leyfi forseta, með tilliti til þessara breytinga og þess sem gerist þegar þessir kostir hafa verið teknir út, að þá sé hægt að „friðlýsa virkjunarkosti í verndarflokki gegn orkuvinnslu þar sem virkjunarkostur innan sama svæðis er í biðflokki“.

Þetta hefur sem sagt ekki verið hægt, svo ég reyni nú að skýra mál mitt hérna. Þannig að við leysum þetta vandamál, þ.e. að biðflokksstaða þessara kosta þvælist ekki fyrir því að aðrir kostir eða landsvæði sé friðlýst af öðrum ástæðum.

Um einstaka virkjunarkosti sem hér hefur verið fjallað um og eru í 3. áfanga rammans skal ég nú fjalla um í mjög stuttu máli. Ég styð breytingartillögu um að virkjunarkosturinn Skrokkalda, sem er flokkaður í nýtingu í þessum áfanga rammans, verði færður í biðflokk. Fyrir því eru þau rök helst að Skrokkalda er inni á miðhálendinu og í nálægð við friðlýst svæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Nefndin er einhuga um að á miðhálendinu skuli horft til landslagsheilda við ákvörðun um nýtingu lands. Áhersla á vernd óbyggðra víðerna fer vaxandi, ekki síst í ljósi þess að u.þ.b. 40% þeirra víðerna sem teljast ósnortin í Evrópu má finna á Íslandi.

Hvað varðar Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun, þá hugsanlegu virkjunarkosti í neðri hluta Þjórsár, vildi ég segja eftirfarandi: Hv. umhverfis- og samgöngunefnd barst fjöldi umsagna vegna virkjunarkosta í neðri hluta Þjórsár. Umsagnir einstaklinga og frjálsra félagasamtaka áttu það allar sameiginlegt að leggjast gegn virkjunaráformum. Í umsögn Bjargar Evu Erlendsdóttur má lesa eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Það er talað um að ná sátt, en sátt sem náð er með valdbeitingu er ekki góð sátt. Fjöldi félaga og einstaklinga sitja nú við enn einn ganginn og skrifa athugasemdir við sömu áform, hafi þau ekki gefist upp. Ekkert hefur breyst sem mælir með þessum virkjunum“ — og er þá vísað í virkjanirnar í neðri hluta Þjórsá — „í byggð. Baráttan um virkjanir Þjórsár í byggð er mannréttindamál.“

Ljóst er að margir íbúanna við neðri hluta Þjórsár eru langt frá því að vera sáttir við fyrirhugaðar hugmyndir um virkjanir á svæðinu og sárþreyttir eftir áralanga baráttu gegn áformum Landsvirkjunar um Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjanir. Þá liggur fyrir að upp Þjórsá syndir laxastofn sem talinn er einstakur á heimsvísu. Í samstarfssáttmála ríkisstjórnarflokkanna er þess getið sérstaklega að unnið skuli að rammaáætlun í sem mestri sátt við íbúa á áhrifasvæðum virkjunarkostanna. Það verður því að teljast skref í rétta átt að það sé tillaga meiri hlutans að kostirnir Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun verði flokkaðir í biðflokk þar til umfjöllun um samfélagsleg áhrif fyrirhugaðra virkjana á nærsamfélagið á grundvelli nýrrar nálgunar í aðferðafræði faghópa 3 og 4 verði lokið.

Fyrsti minni hluti vill þó ganga lengra og með sömu rökum styðja þá tillögu komi hún fram hér, og hún mun koma fram við afgreiðslu málsins, að Hvammsvirkjun verði færð úr nýtingarflokki í biðflokk, enda má segja að þessar þrjár virkjanir hangi saman í áformum fyrirtækisins.

Hvað varðar Búrfellslund er þeim vindorkukosti raðað í biðflokk í fyrirliggjandi tillögu með þeim rökum að hann sé á röskuðu svæði sem hafi lágt verndargildi en áhrif hans á ferðamennsku og útivist séu hins vegar mikil. Í umsögnum um tillögurnar er bent á að áhrif Búrfellslundar kunni að vera minni á ferðamennsku en áður var talið. Tekið skal undir það mat að svæðið henti einkar vel til vindorkuframleiðslu auk þess sem horfa þurfi til samspils nýtingar vindorku og vatnsaflsvirkjana Landsvirkjunar á svæðinu og þá reynslu sem fáist með uppbyggingu vindorkuvers nærri tengivirkjum og flutningslínum. Sú sem hér stendur er því hlynnt því að færa þennan kost í nýtingarflokk, eins og meiri hlutinn leggur til, en ástæðan fyrir því er aðallega sú að Landsvirkjun er í eigu almennings í landinu og greiðir arð til ríkissjóðs. Ég er þeirrar skoðunar að þegar við förum af stað með nýjan kost eins og vindorkuna, þá eigi fyrirtæki sem er í eigu almennings í landinu að vera þar fremst í flokki og það eigi að nýta þekkinguna og slagkraftinn sem þar er til að vinna þessa tillögu. Við getum ekki byrjað í vindorkuvirkjunum án þess að setja niður lagaramma um auðlindanýtinguna og þá auðlindarentu sem einkafyrirtæki, sem hafa mikinn áhuga á nýtingu vindorku hér á landi, munu þurfa að greiða til ríkissjóðs í framtíðinni. Sá rammi verður að liggja fyrir áður en lengra er haldið.

Sú sem hér stendur er andvíg breytingartillögu meiri hlutans þar sem lagt er til að virkjunarkostirnir fjórir í Héraðsvötnum, Skatastaðavirkjun C, Skatastaðavirkjun D, Villinganesvirkjun og Blanda í Vestari-Jökulsá verði færðir úr verndarflokki yfir í biðflokk. Það er mitt álit að ekki hafi verið færð fullnægjandi málefnaleg rök fyrir þessari breytingu og það sé engin óvissa til staðar um raunveruleg neikvæð áhrif virkjunarkostanna á vatnasvið, náttúrufar og landslag. Fyrir liggur að verndargildi vistgerðanna er hátt. Ég vil af þessu tilefni einnig benda á að í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar var bent á að vatnasvæði Héraðsvatna, þar á meðal jökulárnar í Skagafirði, séu mjög mikilvægar fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði. Þar eru fyrirtæki sem reka flúðasiglingar m.a. og eru undirstöðuatvinnugrein á svæðinu.

Ég hef satt að segja af því miklar áhyggjur að þessi tillaga verði samþykkt hér á hinu háa Alþingi og hef staðið að því ásamt hv. þingmönnum Andrési Inga Jónssyni og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur að flytja breytingartillögu við breytingartillögu meiri hlutans þar sem lagt er til að kostirnir í Héraðsvötnum og einnig Kjalölduveita verði áfram í verndarflokki. Það hníga ekki nein málefnaleg rök til annars en að þessir kostir verði áfram þar.

Fyrsti minni hluti mun styðja flutning virkjunarkostanna Skrokkölduvirkjunar, Holtavirkjunar og Urriðafossvirkjunar úr nýtingarflokki í biðflokk eins og áður hefur komið fram og einnig flutning vindorkukostsins í Búrfellslundi.

Það er mjög mikilvægt við þessa afgreiðslu, frú forseti, að horfa til langs tíma og setja þau náttúruverndarverðmæti og þau miklu verðmæti sem við höfum í höndunum við afgreiðslu á þessari tillögu í samhengi við framtíðarhagsmuni okkar. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að þær náttúruperlur sem okkur hefur lánast að standa vörð um hingað til, og mun vonandi áfram verða, gefa okkur til langrar framtíðar margfalda, kannski ekki beinharða peninga, það verða auðvitað beinharðir peningar, en það er gildi náttúrunnar í sjálfri sér sem hér skiptir máli. Það er verkefni okkar sem vörslumanna þessarar einstöku íslensku náttúru að standa vörð um hana og sjá til þess að við getum skilað henni til framtíðarkynslóða, helst ósnortinni. Þegar við þurfum að nýta hana þá verðum við að gera það varlega og með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi.

Nú síðast í morgun barst þingmönnum bréf frá forsvarsfólki Náttúruverndarsamtaka Íslands og Landverndar þar sem farið var yfir það í nokkuð ítarlegu máli hvernig meiri hluti nefndarinnar hefur í raun ekki fært nógu haldbær rök fyrir þessari færslu, þ.e. að færa kostina í Héraðsvötnum og Kjalöldu úr verndarflokki í biðflokkinn. Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér erindi þessara tveggja samtaka sem hafa staðið fremst í flokki í náttúruverndarbaráttu síðustu áratuga hér á landi. Það er mjög mikilvægt að við hlustum á þær raddir og það er líka mjög mikilvægt að við lærum af biturri reynslu náttúruverndarbaráttunnar á Íslandi. Þau okkar sem munum svo langt aftur vitum að þegar rammaáætlun var sett af stað hafði staðið yfir og stóð yfir einhver erfiðasta barátta sem náttúruverndarsinnar á Íslandi hafa staðið í í sögu þessa lands og það var baráttan fyrst gegn Eyjabakkavirkjun og síðan gegn Kárahnjúkavirkjun. Sú seinni tapaðist eins og allir vita og það var auðvitað í tilraun til að ná utan um þetta verkefni og einnig í tilraun til að græða sárin sem opnuðust í samfélaginu við þá framkvæmd og við í rauninni það stríð sem þá stóð yfir um náttúruvernd á Íslandi sem rammaáætlun var sett á koppinn og 2. áfangi hennar unninn, sem var samþykktur hér árið 2013 eins og þegar hefur fram komið.

Rammaáætlun er mjög mikilvægt verkfæri fyrir stjórnvöld. Hún setur, eins og orðið bendir til, rammann utan um það hvar við ætlum að nýta landsvæði til orkuöflunar og hvaða landsvæði við ætlum að friða gegn orkuöflun. Það má alveg hugsa við endurskoðun laganna hvort það sé ekki kominn tími til að snúa þessari röksemdafærslu við, eins og fram hefur komið t.d. í málflutningi Landverndar, og líta svo á að landið skuli vera ósnert af virkjunarframkvæmdum nema annað sé ákveðið. Kannski er kominn tími til að við íhugum þá nálgun nú þegar við erum komin góð 20 ár inn í 21. öldina og erum að ná utan um það verkefni að leyfa rammaáætlun og 3. áfanga hennar að hafa sinn gang í þeirri von að við getum unnið áfram með 4. og 5. áfangann að þegar við förum í heildarendurskoðun laganna leyfum við okkur að hugsa þessa hluti algerlega upp á nýtt. Ég hygg að það sé meiri hljómgrunnur fyrir því núna en nokkru sinni áður í samfélagi okkar og að við höfum allt að vinna og engu að tapa ef við stöndum vörð um náttúru Íslands, vistkerfin og þau gríðarlegu verðmæti sem landið sem við byggjum hefur fært okkur.