152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[16:18]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta um.- og samgn. (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Herra forseti. Hvar skal byrja? Það er kannski rétt að byrja á því að tala um hversu leiðinlegt er að sjá svona illa farið með það verkfæri sem rammaáætlun er, verkfæri sem er ætlað að ná sátt. Það er kannski erfitt að tala um sátt, en því er ætlað að búa til einhvers konar leið til að koma saman ólíkum sjónarmiðum varðandi nýtingu landsvæða þar sem fólk vill reisa virkjanir. Þetta ferli er í sjálfu sér málamiðlun á milli sjónarmiða sem áratugum saman hafa ekki átt samleið í íslensku samfélagi. Þegar ég segi að þau hafi ekki átt samleið þá hefur það verið svo að nánast undantekningarlaust hafa sjónarmið virkjunarsinna orðið ofan á þegar tekist hefur verið á um einstakar virkjanir. Nú eru náttúruverndarsamtök mætt fyrir utan Alþingi með barmmerki og eru að fara að mótmæla vegna þess að það er verið að tæta þetta verkfæri í sundur á lokametrunum. Mér sýnist ég vera búinn að fá senda mynd af fossinum Dynk sem meiri hlutinn leggur til að taka úr verndarflokki — ekki fossinn sjálfan, nei. Kjalölduveita, sem Landsvirkjun leggur ríka áherslu á að fá, mun þurrka Dynk upp; veita vatninu yfir á Þjórsár-Tungnaársvæðið þar sem Landsvirkjun getur breytt Dynk í peninga. Þessi vegferð Landsvirkjunar er stórundarleg í ljósi þess að þetta á að heita opinbert fyrirtæki. Þetta á að heita fyrirtæki sem starfar í almannaþágu. En í hálfa öld hefur það verið að berjast fyrir því að fá að rústa Þjórsárverum til að geta breytt vatninu þaðan í peninga, í Þjórsá. Það gekk svo langt 2013 þegar Landsvirkjun hafði tapað baráttunni um Norðlingaölduveitu, að þáverandi umhverfisráðherra tók í handbremsuna. Hann stoppaði friðlýsingu Þjórsárvera, stoppaði stækkun friðlandsins þar með svo stuttum fyrirvara að það var búið að gera brauðterturnar og steikja pönnukökurnar. Það var allt tilbúið fyrir austan til að blása í lúðra og fagna því að friðlandið í Þjórsárverum myndi stækka. Þá sagði ráðherrann: Nei. Í framhaldinu settist Landsvirkjun við teikniborðið og teiknaði upp Kjalölduveitu sem er eins og Norðlingaölduveita nema hún er teiknuð rétt fyrir utan hið friðlýsta svæði. Er það nema von að þáverandi framkvæmdastjóri Landverndar, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hafi kallað Kjalölduveitu Norðlingaölduveitu í dulargervi? Næsti bær, má vart á milli sjá þessa dagana. Það skrýtna er — nei, það er ekkert skrýtið.

Mig langar aðeins að tala um það hvernig við unnum þetta í umhverfis- og samgöngunefnd, þessa tillögu um rammaáætlun. Það er alveg rétt, sem hér hefur komið fram, að það var ýmislegt vel gert í nefndarstarfinu, gestir komu og gátu gert grein fyrir sjónarmiðum sínum og þeim er flestum rækilega til haga haldið í öllum þeim álitum sem liggja fyrir í málinu. En það var eitt lykilatriði sem við fengum aldrei inn í umræðuna. Það er atriði sem var flaggað hér í fyrri umræðu málsins, á fyrstu stigum málsins. Þá kom fram að allir stjórnarflokkarnir gerðu fyrirvara við tillöguna sem ráðherrann lagði fram. Tveir flokkar sögðu berum orðum að þeir vildu stækka biðflokkinn. Hvað þýðir það? spurðum við hér í þingsal. Þetta var eins og að lesa Litlu gulu hænuna. Allir sem við spurðum sögðu: Ekki ég, ekki ég. Ég ætla ekki að segja það. Þetta var eitthvað óleyst, þetta var fyrirvari sem enginn vissi nákvæmlega hvað fæli í sér annað en það að virkjunarflokkarnir vildu fá eitthvað fyrir sig. Þeir áttu bara eftir að finna út úr því. Í hvert sinn sem við vöktum máls á þessu innan nefndarinnar í framhaldinu fengum við svipuð svör: Ekki ég, ekki ég. Ég ætla ekki að koma með einhvern óskalista hér. Ekki ég, ekki ég. En á síðustu dögunum, það er vika síðan við í nefndinni, sem eigum þó að vera með smáforskot á fólk almennt þegar kemur að innvolsi þingsins, fengum að vita hver hefði orðið málamiðlunin í þessu máli á milli stjórnmálaflokka og stjórnarflokkanna. Við skulum fara varlega með orðið málamiðlun í þessu sambandi. Mér finnst alveg eðlilegt að málamiðlun sé gerð á milli ólíkra hagsmuna á málefnalegum grunni. Mér finnst alveg eðlilegt að þetta verkfæri sem rammaáætlun er reyni að finna málamiðlun milli þeirra sem vilja nota landsvæði undir virkjanir og þeirra sem vilja nota landsvæði undir eitthvað annað, en til þess notum við rök, vísindaleg gögn. Málamiðlun stjórnarflokkanna er ekkert slíkt heldur bara pólitísk refskák þeirra á milli, hrossakaup, svo að ég noti orð sem mér finnst of margtuggið til að geta endilega notað það. Þetta fengum við í fangið í þann mund sem verið var að ganga frá þinglokasamningum, þegar málahaugurinn hér á þingi er svo stór að allt fellur í skuggann. Það er auðvitað engin tilviljun, herra forseti, heldur meðvituð taktík stjórnarflokkanna til að forðast umræðu um óverjandi ákvörðun, til að vera í skjóli og þurfa ekki að verja það sem ekki er hægt að verja. Hvað einkennir allar þessar breytingar? Það sem einkennir þær er að það er hlustað á virkjunarsinna. Það er hlustað á virkjunaraðila. Varúðarreglunni er beitt hægri vinstri í tillögu meiri hlutans í þágu virkjunaraðila, ekki í þágu náttúrunnar eins og á að gera. — Þessi inngangur var aðeins lengri en ég ætlaði, fyrirgefið, herra forseti.

Það sem mig langaði líka að nefna er lengra ferlið, hvernig núverandi stjórnarflokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sérstaklega sem hafa verið lengur í ríkisstjórn en Vinstri græn, hafa meðvitað og ómeðvitað grafið undan rammaáætlun á síðustu árum. Það er nefnilega engin tilviljun að við stöndum hér níu árum eftir samþykkt síðustu rammaáætlunar, loksins komin á þann stað að mögulega er hægt að samþykkja þá næstu. Að stóru leyti er það vegna tafaleikja, aðallega Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks svo að ég beri nú blak af vinum mínum í Vinstri grænum. En með því að ganga í ríkisstjórn með þessum tveim flokkum tóku Vinstri græn þátt í því að ekkert hefur gerst síðustu fjögur ár. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hin fyrri fléttaði saman rammaáætlun, hálendisþjóðgarð og Þjóðgarðastofnun þannig að öll mál urðu ómöguleg og ekkert kláraðist á síðasta kjörtímabili. Fjögur glötuð ár í náttúruvernd, takk fyrir. En hvað gerist líka? Það byggist upp þrýstingur á að komast hjá rammaáætlun. Sumir hafa lýst því sem villta vesturs ástandi sem ríki vegna þess að þröskuldurinn inn í rammaáætlun er 10 MW. Allt í einu er rosaleg ásókn í að reisa 9,9 MW virkjanir sem þurfa ekki að fara í gegnum rammann. Það eru engar smáræðisvirkjanir. Nú styttist t.d. í að restin af því hálendi Austurlands sem þó var ekki snortið af Kárahnjúkavirkjun verði útsett í svokölluðum smávirkjunum. Þessar virkjanir eiga að dreifast eins og hagladrífa yfir svæði sem við ættum miklu frekar að verja. Það gerist líka út af hinu stóra kerfislæga vandamálinu sem við glímum við í orkuframleiðslu og það eru götótt lög um umhverfismat. Það þótti nefnilega dálítið skítlegt af Skipulagsstofnun þegar keyra átti Kárahnjúkavirkjun í gegn. Þáverandi stjórnvöldum þótti algerlega ómögulegt að sú stofnun gæti einhvern veginn bremsað þá framkvæmd eins og var í þágildandi lögum ef álit hennar á umhverfisáhrifum var verulega neikvætt. Lögum var því breytt í þágu virkjunaraðila, í þágu allra sem eru í framkvæmdahug og vilja ekki láta neikvætt umhverfismat stoppa sig. Því var breytt þannig að leyfisveitandi er ekkert bundinn af því hvort Skipulagsstofnun telji umhverfismat það neikvætt að framkvæmd skuli ekki eiga sér stað.

Ég nefni þetta, forseti, vegna þess að ég held að þetta sé dálítið stór þáttur í tortryggninni eða, eigum við ekki bara að kalla hlutina réttum nöfnum, kvíðanum hjá fólki sem býr nálægt Þjórsá t.d., sem veit að ef kostir lenda í nýtingarflokki í rammaáætlun er næsta bremsa umhverfismatið og leyfisveitingaferlið hjá sveitarfélögum og vegna þessarar gloppu í umhverfismatslögunum þá er það engin bremsa að heitið geti. Þess vegna stöndum við alltaf frammi fyrir svona heitum umræðum í kringum rammaáætlun vegna þess að hún er, sem hún ætti ekkert að vera ef við værum með almennilegt lagaumhverfi, síðasta vígið. Það er hér sem virkjunarkostir vinnast eða tapast í þágu náttúrunnar.

Að kostunum og þá kannski dálítið út frá tillögum meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar og þessum pólitíska býttileik sem stjórnarflokkarnir fóru í. Fyrst vil ég nefna þessa tiltekt sem var framkvæmd á virkjunarkostum sem Orkustofnun hafði sett inn í rammaáætlun að eigin frumkvæði en þeir voru fæstir á forræði einhvers virkjunaraðila. Þetta voru einhverjar gamlar hugmyndir sem fundust í einhverjum rykföllnum skrám uppi í hillu og einhver hafði einhvern tíma verið að spá í sem var hent inn í verkefnisstjórn rammaáætlunar, næstum eins og til að setja sand í hjólin. Það fór gífurlega mikil óþörf vinna í að skoða þessa kosti, vinna sem engu getur skilað vegna þess að kostur í biðflokki losnar ekki úr biðflokki nema rannsóknir sýni að hann eigi heima annars staðar. Ef enginn virkjunaraðili er til staðar til að framkvæma mat á kostinum þá breytist sú staða ekkert. Það er því sérstaklega ánægjulegt að þessi hreingerning hafi átt sér stað. Einnig er gott að sjá að meiri hlutinn leggur til að Skrokkalda sé færð úr nýtingu í bið, enda er það til þess að gera lítill virkjunarkostur á alveg ofboðslega dýrmætu svæði, bara lóðbeint á miðju hálendinu rétt utan í mörkum Vatnajökulsþjóðgarðar, fráleitt að sá kostur hafi lent í nýtingu og í raun fráleitt að hann sé yfir höfuð inni í rammaáætlun alveg eins og Hágönguvirkjun sem er þar á næstu grösum. Þessir kostir hefði auðvitað átt að skúbbast út úr rammaáætlun á sama tíma og hálendisþjóðgarður hefði orðið að veruleika, en af því varð ekki og þar að auki var það hluti af málamiðlun þess kjörtímabils að virkjunarframkvæmdir mættu eiga sér stað innan hálendisþjóðgarðsins þannig að Skrokkalda og Hágöngur hefðu getað orðið samhliða þessum hálendisþjóðgarði. En rökin sem eru notuð fyrir því að færa Skrokköldu í bið eru rök sem mætti t.d. nota um Hvalárvirkjun. Ég nefni hana vegna þess að hún var sett í orkunýtingarflokk 2013 og það var óbreytt 2016 þegar þessi tillaga kom fyrst fram. En síðan hafa forsendur breyst. Skipulagsstofnun skilaði t.d. áliti 2017 þar sem kom fram að ýmis neikvæð áhrif yrðu af framkvæmdinni. Þetta eru nýjar upplýsingar sem á að taka tillit til. Hér á að beita varúðarreglunni í þágu náttúrunnar en ekki virkjunaraðila. Þess vegna legg ég til í breytingartillögu, sem ég stend einn að, að Hvalárvirkjun færist úr orkunýtingarflokki í biðflokk til að hægt sé að skoða hana nánar. Ég legg það sama til varðandi Hvammsvirkjun, einu virkjunina af þrenningunni í neðri hluta Þjórsár sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur ekki til að færa úr nýtingu í bið. En það er líka eina virkjunin sem er alveg að fara að verða að veruleika. Þetta er virkjunin sem þarf að skoða í Þjórsá áður en af henni verður. Að færa þá virkjun ekki í biðflokk með hinum tveimur gerir að engu orð meiri hlutans í nefndaráliti um að skoða eigi þessar þrjár virkjanir sem heild. Ef meiri hlutinn vill skoða þær sem heild þurfa þær allar að fara í bið. Það hefur engin réttaráhrif annars. Þess vegna legg ég til að Hvammsvirkjun færist í bið á sérstöku þingskjali.

Tíminn er að verða búinn og ég er ekki einu sinni hálfnaður þannig að ég ætla bara að skauta í gegnum restina. Það eru stóru slæmu breytingarnar tvær, póliltísku hrossakaupin í þágu virkjunar. Annars vegar að færa Héraðsvötnin úr vernd í bið og hins vegar Kjalöldu úr vernd í bið; í báðum tilfellum á mjög hæpnum forsendum. Landsvirkjun heldur því fram, í umsögn til nefndarinnar, að ákvörðun verkefnisstjórnar varðandi Kjalöldu sé ólögleg. Það er orðið sem þau nota í umsögn. Opinbert fyrirtæki notar í umsögn til Alþingis orðið „ólöglegt“ um þessa ákvörðun. Ráðuneytið segir að það sé bull og vitleysa en í þágu varúðarreglu virkjunarsinna ákveður meiri hlutinn að færa þessa virkjun til. Með Héraðsvötnin þá skiptir mjög litlu máli hvað virkjunaraðilinn, Kaupfélag Skagfirðinga, segir um áhrif virkjana í Héraðsvötnum þegar það liggur fyrir og er algjörlega óumdeilt að náttúran í Héraðsvötnum (Forseti hringir.) er sú sem skoraði langhæst af öllum svæðum sem rammaáætlun skoðaði. Píratar, Samfylking og Viðreisn leggja saman til að Héraðsvötnin og Kjalalda fari (Forseti hringir.) aftur í vernd þar sem þau eiga heima vegna þess að við gerum ekki pólitísk hrossakaup um náttúru af þessu kalíberi.