152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[16:39]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vildi nota tækifærið og kannski byrja þar sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson þurfti að ljúka ræðu sinni tímans vegna og það var að ræða um flutninginn á Kjalölduveitu. Það fer ekkert á milli mála og liggur fyrir í svari frá ráðuneytinu að það sem Landsvirkjun kallar ólögmæta meðferð er bara þvættingur. Við erum hér með rökstuðning frá faghópi 1 og 2 sem var skilað inn til verkefnisstjórnarinnar og þar var það mat hennar að kosturinn Kjalölduveita væri sá sami og Norðlingaölduveita. Það var mat verkefnisstjórnarinnar og það var metið í faghópum hennar. Það lá fyrir að það skyldi vera þannig. Ég verð að viðurkenna að ég verð svolítið döpur þegar ég fylgist með sömu atburðarásinni aftur og aftur. Það er haldið áfram að ýta. Það er í rauninni rótað í sömu málunum. Það sem hefur gerst núna, eins og hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu, er að þrýstihóparnir, auðmennirnir hafa komist í tillöguna og þess vegna er verið að færa t.d. Héraðsvötnin úr vernd í bið. Mig langar að biðja hv. þingmann, af því hv. þingmaður var á árum áður félagi í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, að skýra út fyrir mér hvernig hann haldi að svona geti gerst í gamla flokknum hans.