áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Þegar stórt er spurt, herra forseti. Ég má kannski byrja á því að nefna það sem hv. þingmaður talar um, þessa áratugalöngu baráttu gegn hagsmunaöflum og þá sérstaklega fólkið við Þjórsárbakka sem hefur þurft að berjast gegn Landsvirkjun í hálfa öld. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg úr hverju það fólk er búið til vegna þess að styrkurinn sem þarf til að berjast við ofurefli í allan þennan tíma, það er ekki lítill styrkur. En það sem gerist náttúrlega þegar allt í einu flokkurinn sem gaf sig einu sinni út fyrir að vera besti náttúruverndarflokkur í heimi er kominn í lið með þessum öflum er að þá allt í einu missir baráttufólkið mjög mikilvægt bakland. Það sem gerist síðan er að það er farið að grafa undan alls konar öðru samhliða. Við töluðum um Héraðsvötnin, en í kringum Héraðsvötnin kom þessi gagnrýni á afmörkun vatnasviða frá virkjunaraðilum. Það kom líka í þessu minnisblaði frá Landsvirkjun og var líka hrakið sem þvættingur. En það er samt tekið upp af meiri hlutanum og dregið inn í Skjálfandafljótið og sagt að það mega ekki snerta við einhverri friðlýsingu þar fyrr en er búið að tálga utan af því hvernig svæðið er afmarkað. Það er því búið að grafa undan á ótal stöðum öllum þeim verkfærum sem tengjast rammaáætlun til viðbótar við kjarnann í henni.
En spurningin um hvernig svona gerist — flokkar skrælna stundum, skrælna að utan og innan, en það er samt fólk í grasrót Vinstri grænna (Forseti hringir.) enn þá. Ung Vinstri græn sendu t.d. út tilkynningu áðan þar sem þau spyrja hvort ríkisstjórnarsamstarfið sé í alvöru (Forseti hringir.) þess virði að fórna eigin sannfæringu og baráttumálum fyrir. Þau halda ekki (Forseti hringir.) en við sjáum í atkvæðagreiðslunni um þetta mál hvað þingmönnum finnst.